Heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp um samhæfingu tækjakaupa og uppbyggingu Nýs Landspítala. Markmið starfshópsins er að stuðla að markvissri samhæfingu við endurnýjun lækningatækja Landspítala og uppbyggingu Nýs Landspítala þannig að fjármunir nýtist sem best og að ákvarðanir um tækjakaup taki mið af bæði rekstrarþörfum og uppbyggingu nýrra bygginga.
Starfshópurinn er þannig skipaður:
- Ásgeir Margeirsson, formaður án tilnefningar
- Jón Hilmar Friðriksson, tilnefndur af Landspítala
- Jónas Jónatansson, tilnefndur af NLSH
- Ólafur Darri Andrason, tilnefndur af heilbrigðisráðuneytinu
- Heiða Lind Baldvinsdóttir, tilnefnd af heilbrigðisráðuneytinu