Svæðisráð um strandsvæðisskipulag fyrir Austfirði

Svæðisráð um strandsvæðisskipulag fyrir Austfirði starfar á grundvelli laga um skipulag haf- og strandsvæða nr. 88/2018 og reglugerða sem settar eru á grundvelli þeirra.

Strandsvæðisskipulag fyrir Austfirði var samþykkt af innviðaráðherra í mars 2023. Hlutverk svæðisráðsins er að fjalla um álitamál sem félags- og húsnæðismálaráðherra, og eftir atvikum Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, beinir til svæðisráðsins. Ef endurskoða þarf strandsvæðisskipulag eða gera breytingu á því í samræmi við 14. gr. laganna skal ráðherra óska eftir því við svæðisráðið að það endurskoði skipulagið eða vinni tillögu að breytingu á því.

Svæðisráðið er þannig skipað:

Guðjón Bragason, formaður, skipaður án tilnefningar,

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, varafulltrúi formanns, skipuð án tilnefningar.

 

Aðalfulltrúar tilnefndir af aðliggjandi sveitarfélögum:

Hrafn Bjarnason,

Helga Rakel Arnardóttir,

Ívar Karl Hafliðason.

 

Varafulltrúar tilnefndir af aðliggjandi sveitarfélögum:

Þórdís Mjöll Benediktsdóttir,

Stefán Þór Eysteinsson,

Ásrún Mjöll Stefánsdóttir.

 

Fulltrúar innviðaráðuneytis:

Katrín Pálsdóttir, aðalfulltrúi,

Friðfinnur Skaftason, varafulltrúi.

 

Fulltrúar atvinnuvegaráðuneytis:

María Reynisdóttir, aðalfulltrúi,

Agnar Bragi Bragason, varafulltrúi.

 

Fulltrúar umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis:

Magnús Guðmundsson, aðalfulltrúi,

Björg Finnbogadóttir, varafulltrúi.

 

Fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga: 

Dagmar Ýr Stefánsdóttir, aðalfulltrúi,

Valgerður Rún Benediktsdóttir, varafulltrúi.

 

Skipunartími svæðisráðsins er þar til að loknum næstu alþingiskosningum.