Sveinsprófsnefnd í skrúðgarðyrkju er skipuð samkvæmt 30. gr. laga um framhaldsskóla nr. 92/2008 og reglugerð nr. 698/2009 um sveinspróf. Hlutverk nefndarinnar er að sjá um framkvæmd sveinsprófs í iðninni fyrir landið allt, þar með talið mat á úrlausnum, svo og þau verkefni sem ráðuneytið kann að fela nefndinni sérstaklega og varða sveinspróf.
Nefndin er svo skipuð:
Aðalmenn:
- Ágústa Erlingsdóttir, án tilnefningar
- Guðundur Atli Pálmason, skv. tilnefningu Félags skrúðgarðyrkjumeistara
- Berglind Ásgeirsdóttir, skv. tilnefningu Félags iðn- og tæknigreina.
Varamenn:
- Heiðar Smári Harðarson, án tilnefningar
- Ingibjörg Sigurðardóttir, skv. tilnefningu Félags skrúðgarðyrkjumeistara
- Þórir Kr. Þórisson, skv. tilnefningu samkvæmt tilnefningu Félags iðn- og tæknigreina
Skipunartími nefndarinnar er frá 29. október 2026 - 28. október 2030.
Var efnið hjálplegt?