Vinnuhópur 1 undir landsnefnd um vísindastarf vegna loftslagsbreytinga - Eðlisvísindalegur grundvöllur loftslagsbreytinga

Skipaður 24. nóvember 2026 til loka árs 2029

Vinnuhópur 1 fjallar um vísindalegan skilning á loftslaginu, þar með talið mælingar, líkön og spár um hvernig loftslagið er að breytast og hverjir helstu drifkraftarnir eru. Vinnuhópurinn vinnur að samantekt á stöðu þekkingar á umfangi áhrifa loftslagsbreytinga á Íslandi á eðlisþætti veðurs, hafs og áhrif á jökla og vatnafar. Hann skoðar líklegar breytingar í samhengi við sviðsmyndir um þróun loftslags og tekur þar mið af nýjustu skýrslum vinnuhóps IPCC nr. 1. 

Í vinnuhópnum sitja:

Halldór Björnsson, leiðtogi hóps, fagstjóri veðurs og loftslags hjá Veðurstofu Íslands

Guðfinna Aðalgeirsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands

Hrönn Egilsdóttir, sviðsstjóri hjá Hafrannsóknastofnun

Bryndís Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar

Var efnið hjálplegt?