Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
4. febrúar 2020 /
Sendiráð Íslands í Peking

Sendiráð Íslands í Peking lokað til 10. febrúar

Í samræmi við aðgerðir kínverskra stjórnvalda við að takmarka útbreiðslu Kóróna veirunnar í Kína verður sendiráð Íslands í Peking lokað til 10. febrúar nk. Íslenskum ríkisborgurum í neyð er bent á neyðarsíma utanríkisráðuneytisins: +354 545 0112.

Áritanadeild sendiráðsins sem og áritanamiðstöðvar Íslands í Kína verða einnig lokaðar fram til 10. febrúar nk. Ef um neyðartilfelli er að ræða býðst umsækjendum að senda tölvupóst á netfangið [email protected] og tilgreina ástæður ætlaðrar ferðar og áætlaðan borttfarardag.

Var efnið hjálplegt?