Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
17. mars 2020 /
Sendiráð Íslands í París
Útgöngubann í Frakklandi - Opnunartími sendiráðsins
Vegna útgöngubanns í Frakklandi er ekki lengur fastur opnunartími í sendiráðinu. Hægt er að ná símasambandi við sendiráðið alla virka daga í síma +33 (0)144173285 frá kl. 10-13 og senda fyrirspurnir á netfangið [email protected]. Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins er vegna neyðartilvika opin allan sólarhringinn í síma +354 545 0 112.