Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis vegna komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB
21. júlí 2026
/
ESB–um þjóðaratkvæðagreiðslu
Þjóðaratkvæðagreiðsla
Aðalræðisskrifstofa Íslands í Nuuk
Aðalræðisskrifstofa Íslands í Þórshöfn
Aðalræðisskrifstofa Íslands í Winnipeg
Fastanefnd Íslands hjá Evrópuráðinu
Fastanefnd Íslands hjá NATO
Fastanefnd Íslands hjá S.þ.
Fastanefnd Íslands í Róm
Fastanefnd og sendiráð Íslands í Genf
Sendiráð Íslands í Berlín
Sendiráð Íslands í Brussel
Sendiráð Íslands í Freetown
Sendiráð Íslands í Helsinki
Sendiráð Íslands í Kampala
Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn
Sendiráð Íslands í Lilongwe
Sendiráð Íslands í London
Sendiráð Íslands í Madríd
Sendiráð Íslands í Nýju Delhi
Sendiráð Íslands í Osló
Sendiráð Íslands í Ottawa
Sendiráð Íslands í París
Sendiráð Íslands í Peking
Sendiráð Íslands í Stokkhólmi
Sendiráð Íslands í Tókýó
Sendiráð Íslands í Varsjá
Sendiráð Íslands í Vín
Sendiráð Íslands í Washington DC
Kosning utan kjörfundar erlendis vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB sem fram fer 29. ágúst 2026, hefst 27. júlí nk.
Við minnum þau sem verða erlendis á kjördag, en vilja nýta atkvæðisréttinn, að skipuleggja sig fyrirfram; kjósa á Íslandi áður en farið er af landi brott ef það er hægt en kynna sér ella upplýsingar um framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu í sendiráðum Íslands og hjá kjörræðismönnum erlendis.
Sjá nákvæmar upplýsingar um kjörræðismenn, staðsetningar, opnunartíma og fyrirkomulag.
Kjörstaðir erlendis eru:
• Sendiskrifstofur Íslands (nema fastanefnd Íslands hjá Atlantshafsbandalaginu í Brussel)
• Aðalræðisskrifstofur í Winnipeg, Þórshöfn og Nuuk
• Hjá kjörræðismönnum
Kjósendur geta flett upp hvort og hvar þeir séu á kjörskrá á vef Þjóðskrár (kjörskrá verður birt 24. júlí)
Kjósendur þurfa að framvísa gildum persónuskilríkjum með nafni, kennitölu og mynd, svo sem vegabréfi, nafnskírteini eða ökuskírteini, eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjóra t.d ef kjósandi framvísar gildu erlendu skilríki og getur upplýst um íslenska kennitöluna sína og er sannarlega á kjörskrá.
• Kjósendur bera sjálfir ábyrgð á því að koma atkvæði sínu til skila.
• Athugið að senda þarf atkvæði beint á það sveitarfélag sem kjósandi er skráður með lögheimili í.
• Ef senda á atkvæði með pósti er ráð að kjósa tímanlega og þá þarf sömuleiðis að taka mið af sendingartíma og áreiðanleika viðkomandi póstþjónustu þess ríkis sem kosið er í.
Kjósandi getur beðið kjörstjóra um að setja atkvæði í almennan póst, en það tryggir ekki að atkvæðið berist í tæka tíð.
Nánari upplýsingar um framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu má finna á síðu Landskjörstjórnar.
Á Ísland.is eru aðgengilegar upplýsingar um hvaðeina sem viðkemur framkvæmd kosninga, bæði á íslensku og ensku.