Alþjóðasamvinna í breyttum heimi

24. nóvember 2026
/
Utanríkisráðuneytið
Utanríkisráðherrar Norðurlanda og Afríkuríkja í Osló.
Utanríkisráðherrar Norðurlanda og Afríkuríkja í Osló.

Árlegur fundur utanríkisráðherra Norðurlanda og Afríkuríkja var haldinn 19.-20. nóvember sl. í Osló. Til umræðu var alþjóðasamvinna í breyttum heimi, sameiginlegar áskoranir og ekki síst tækifæri til aukinnar samvinnu á sviði gervigreindar, fjárfestinga og viðskipta.

Logi Einarsson, ráðherra menningar, nýsköpunar, háskóla og norrænnar samvinnu, tók þátt í fundinum fyrir Íslands hönd. Lagði hann áherslu á að meiri aðkoma Afríkuríkja að öryggisráði Sameinuðu þjóðanna væri nauðsynleg til að auka lögmæti ráðsins og tiltrú á því.

Þá átti hann tvíhliða fundi með utanríkisráðherrum Malaví og Úganda og með framkvæmdastjóra Afríkusambandsins á sviði friðar og öryggis. Hann ávarpaði einnig viðburð á vegum sendiráðs Íslands í Osló, norsk-íslenska viðskiptaráðsins og Íslandsstofu.

Næsti fundur utanríkisráðherra Norðurlanda og Afríkuríkja verður haldinn í Gana að ári liðnu.