Egyptaland

Sendiherra Íslands í Noregi er einnig trúnaðarbundinn (“accredited”) gagnvart Egyptalandi, Pakistan og Tyrklandi. Sendiráð Íslands í Osló er því opinber tengiliður við stjórnvöld þessara ríkja og það er á verksviði sendiráðsins að gæta íslenskra hagsmuna í þeim.  Hér að neðan má finna upplýsingar um sendiráð viðkomandi ríkja gagnvart Íslandi, upplýsingar um ræðismenn Íslands í þessum löndum og vegabréfsáritanir.

Address

Web:

Email: [email protected]

Office hours: Afgreiðsla virka daga frá kl. 10:00 - 15:00. Símatími virka daga frá kl. 12:00-14:00

Phone: +(47) 2323-7530

Embassy of Egypt to Iceland

Ambassador: Ragnar G. Kristjánsson

Vegabréfsáritanir fyrir íslenska ferðamenn

Ekki er gagnkvæmur samningur við ríkið

Ferðamenn þurfa að fá upplýsingarnar staðfestar hjá viðkomandi erlendu sendiráði, ræðisskrifstofu eða öðrum opinberum aðila þess ríkis sem ferðast skal til. Upplýsingar þessar geta breyst án þess að utanríkisráðuneytinu sé um það tilkynnt. Því er ferðamönnum eindregið ráðlagt í þeim tilvikum þar sem ekki er gagnkvæmur samningur í gildi að fá þær upplýsingar er hér greinir staðfestar.

Vegabréfsáritun:
Til hvaða erlends aðila á að leita? Sendiráðs Egyptalands í Osló (sjá upplýsingar hér á síðunni).

Fyrirvari
Upplýsingarnar á þessari síðu eru eingöngu settar fram í leiðbeiningarskyni og án ábyrgðar af hálfu utanríkisráðuneytisins. 
Hafa ber hugfast að reglur geta breyst hratt í einstaka löndum og að staðaryfirvöld eiga ávallt lokaorðið um lagaframkvæmdina. 
Ferðafólk ber ætíð sjálft ábyrgð á ferðaundirbúningi og því að kynna sér þær kröfur sem gerðar eru til ferðamanna á sérhverjum áfangastað.