Auk Japans eru önnur ríki í umdæmi sendiráðsins Filippseyjar, Indónesía, Singapúr, Suður-Kórea og Taíland. Í yfirliti hvers ríkis að neðan má finna upplýsingar um vegabréfsáritanir fyrir íslenska ferðamenn, sendiráð viðkomandi ríkja gagnvart Íslandi og upplýsingar um ræðismenn Íslands. **Dvalarleyfi erlendra ríkisborgara og Schengen vegabréfsáritanir til Íslands** Sótt er um dvalarleyfi og endurnýjun dvalarleyfis beint til [Útlendingastofnunar](https://island.is/flokkur/innflytjendamal#dvalarleyfi-a-islandi). Sendiráðið eða ræðismenn geta ekki haft milligöngu varðandi einstaka umsóknir, umsækjandi þarf að [hafa samband](https://island.is/adstod/utlendingastofnun/hafa-samband) beint við Útlendingastofnun. Sendiráð Íslands í Tókýó og íslenskir ræðismenn í umdæmi þess gefa ekki út vegabréfsáritanir. Upplýsingar varðandi umsóknarstaði fyrir Schengen vegabréfsáritanir til Íslands í umdæmisríkjum sendiráðsins [má finna hér](https://island.is/saekja-um-vegabrefsaritun).
Ambassador: Hreinn Pálsson
Vegabréfsáritanir fyrir íslenska ferðamenn
Vegabréfsáritun: Nei (14 d.)
Er gagnkvæmur samningur í gildi? Já
Vegabréfsáritun: Nei (14 d.)
Til hvaða erlends aðila á að leita? Sendiráðs Singapore í London
Fyrirvari
Upplýsingarnar á þessari síðu eru eingöngu settar fram í leiðbeiningarskyni og án ábyrgðar af hálfu utanríkisráðuneytisins.
Hafa ber hugfast að reglur geta breyst hratt í einstaka löndum og að staðaryfirvöld eiga ávallt lokaorðið um lagaframkvæmdina.
Ferðafólk ber ætíð sjálft ábyrgð á ferðaundirbúningi og því að kynna sér þær kröfur sem gerðar eru til ferðamanna á sérhverjum áfangastað.
Kjörræðismenn Íslands
Singapore
Mr. Prakash Pillai - Kjörræðismaður
Address:
c/o Clyde & Co Clasis Singapore Pte. Ltd.,
12 Marina Boulevard, Marina Bay Financial Centre Tower 3,
#30-03,
Singapore
Email: [email protected]
Phone: +65 6544 6500 og +65 6544 6587
Mobile: