Sendiherra afhendir Noregskonungi trúnaðarbréf
24 september 2026
Ragnar G. Kristjánsson afhenti í dag Hákoni VIII Noregskonungi trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Noregi. Afhendingin fór fram við hátíðlega athöfn í konungshöllinni í Osló.
Hlutverk sendiráðsins er margþætt en snýr einkum að því að gæta hagsmuna Íslands og Íslendinga í Noregi og umdæmislöndum ásamt því að efla og styrkja viðskiptaleg, menningarleg og pólítísk tengsl landanna.
Auk Noregs eru Egyptaland, Pakistan og Tyrkland í umdæmi sendiráðsins.