15 nóvember 2026
/

Ávarp á minningardegi um fórnarlömb umferðarslysa

Ávarp á minningardegi um fórnarlömb umferðarslysa 15. nóvember 2026

Forseti Íslands, aðstandendur og aðrir góðir gestir.

Í dag er alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa. Í dag komum við saman til að minnast þeirra sem hafa látið lífið í umferðinni og til að sýna stuðning þeim sem lifa með afleiðingum umferðarslysa alla tíð.

Ég vil votta öllum aðstandendum mína dýpstu samúð. Þótt tíminn líði hverfur missirinn aldrei.

Umferðarslys snerta samfélagið allt. Í nýlegri könnun Samgöngustofu kom fram að rúmlega fjórðungur landsmanna hefur misst náinn ættingja eða vin í umferðarslysi.

Um leið og við heiðrum minningu þeirra sem hafa fallið frá er þessi dagur einnig áminning til okkar allra um hversu dýrmætt og hverfult lífið er og hversu mikilvægt það er að við gerum allt sem í okkar valdi stendur til að koma í veg fyrir alvarleg umferðarslys.

Að þessu sinni beinum við sjónum okkar sérstaklega að ungu fólki í umferðinni og hættunni sem fylgir hraðakstri. Hraðakstur er ein helsta orsök alvarlegra slysa og banaslysa meðal ungs fólks. Það er sorgleg staðreynd sem við verðum að horfast í augu við, ræða af hreinskilni og reyna að breyta.  
Ungir og óreyndir ökumenn eru líklegri til að lenda í slysum en þeir sem eldri eru.

Samkvæmt gögnum Samgöngustofu hefur þróunin þó að mörgu leyti verið jákvæð. Slysum af völdum ungra ökumanna hefur fækkað talsvert á síðustu tveimur áratugum og ungmennum sem slasast  í bifreiðum hefur einnig fækkað. Þessa jákvæðu þróun má rekja til nokkurra samverkandi þátta. Þar má nefna öflugt ökunám, auknar kröfur um öryggi ökutækja, betri öryggisráðstafanir á vegum og markvisst fræðslustarf á öllum skólastigum og í fjölmiðlum.

Mjög alvarlegar undantekningar eru hins vegar frá þessari almennu þróun. Gögn lögreglu benda til þess að áhættuhegðun hafi aukist á ný í afmörkuðum hópum ungra ökumanna. Hraðakstur er þar eitt stærsta viðfangsefnið.

Stjórnvöld ætla að bregðast við þessari þróun með markvissum aðgerðum. Á næstu dögum verða kynntar tillögur að breytingum á umferðarlögum sem eiga að draga úr hættulegri hegðun í umferðinni og efla umferðaröryggi enn frekar.

Meðal annars þarf að koma böndum á götukappakstur og annan háskaakstur, og styrkja heimildir lögreglu til að bregðast við alvarlegum umferðarlagabrotum.

Einnig eru lagðar til breytingar sem styrkja öryggi barna í umferðinni, auka ábyrgð vegna hraðakstursbrota og taka á breytingum á farartækjum sem gera þau hraðskreiðari og hættulegri en lög gera ráð fyrir.

En við vitum að löggjöf og viðurlög ein og sér duga ekki.

Þess vegna verður líka ráðist í sérstakt fræðsluátak í samvinnu við ungmenni, foreldra og skólasamfélagið. Rannsóknarnefnd samgönguslysa hyggst fjölga fræðsluheimsóknum í framhaldsskóla og Samgöngustofa mun hrinda af stað sérstöku fræðslu- og kynningarátaki um hraðakstur.

En þegar upp er staðið byggist örugg umferð á sameiginlegri ábyrgð okkar allra.

Við getum öll haft áhrif. Með eigin aksturslagi sýnum við umhyggju fyrir öðrum. Við getum dregið úr hraðanum og gripið inn í þegar við sjáum hættumerki. Við getum tekið vel í ábendingar, frætt hvert annað og hlustað.

Góðir gestir.

Ég vil nota tækifærið og þakka viðbragðsaðilum fyrir ómetanlegt starf í þágu samfélagsins. Lögreglu, starfsfólki Neyðarlínunnar, sjúkraflutningamönnum, björgunarsveitum, þyrlusveitum, slökkviliðsmönnum og heilbrigðisstarfsfólki, sem sinnir slösuðum af fagmennsku og alúð í hvívetna.

Ég vil líka þakka ÖBÍ réttindasamtökum fyrir mikilvægt starf í þágu þeirra sem búa við fötlun og lifa með afleiðingum slysa. Og starfsfólki Samgöngustofu og Vegagerðarinnar færi ég þakkir fyrir þeirra framlag til aukins umferðaröryggis.

En fyrst og fremst skulum við í dag minnast þeirra sem við höfum misst. Og hugsa um þau sem við ætlum að vernda. Því hvert mannslíf er dýrmætt.

Látum umhyggjuna ráða för í þessari vegferð og sýnum gott fordæmi.

Ég segi við ykkur, ungmenni landsins, sem eigið framtíðina fyrir ykkur. Farið varlega í umferðinni – og passið upp á jafnaldra ykkar. Flýtið ykkur hægt – hvort tveggja í umferðinni og lífinu sjálfu.

Takk fyrir.

Var efnið hjálplegt?