Ávarp á Hafnasambandsþingi 2026
Ávarp á Hafnasambandsþingi 22. október 2026
Ágætu þingfulltrúar og góðir gestir.
Allt frá upphafi byggðar hefur sjórinn verið undirstaða lífs og atvinnu á Íslandi. Hafnirnar hafa verið lífæð samfélaganna, fyrst sem lendingarstaðir sem gerðu búsetu mögulega og síðar sem öflugar miðstöðvar atvinnulífs, verslunar og samskipta við umheiminn. Það er því engin tilviljun að helstu þéttbýlisstaðir landsins hafa byggst upp við hafnir. Þær hafa lagt grunn að vexti þessara staða og eru enn forsenda áframhaldandi framfara.
Öflug hafnaraðstaða er ómissandi fyrir sjávarútveginn og gegnir jafnframt lykilhlutverki í vöruflutningum til og frá landinu og milli landshluta. Fjölgun heimsókna skemmtiferðaskipa undanfarin ár hefur enn aukið umsvif hafnanna og kröfur um aðstöðu og þjónustu. Hafnir eru þannig burðarás í atvinnulífi landsins og traust undirstaða þróunar byggðanna, hvort sem litið er til ferðaþjónustu, sjávarútvegs, fiskeldis eða vöruflutninga.
Til að hafnirnar geti áfram gegnt þessu mikilvæga hlutverki verður að tryggja þeim nægar tekjur til viðhalds, uppbyggingar og þróunar. Þær þurfa að geta vaxið og eflst í takt við breyttar þarfir og auknar kröfur í hafsækinni starfsemi. Innviðaráðuneytið hefur því hafið endurskoðun á gjaldaákvæði hafnalaga í samráði við Hafnasamband Íslands.
Saga strandsiglinga sýnir glöggt hversu miklu hafnirnar skipta fyrir tengsl byggða og lífskjör um land allt. Áður en vegakerfið og flugvellirnir komu til sögunnar voru strandsiglingar lífæðin sem tengdi landshlutana saman og tryggði dreifingu vara og þjónustu.
Nú stöndum við á nýjum tímamótum. Kallað er eftir sjálfbærari flutningum, aukinni byggðafestu og hagkvæmum lausnum sem létta á vegakerfinu og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Strandsiglingar geta gegnt veigamiklu hlutverki í að mæta þessum þörfum og orðið enn sterkari þáttur í heildstæðu samgöngukerfi þjóðarinnar. Forsenda þess er öflugt net hafna með trausta aðstöðu og getu til að þróast. Með því að styrkja hafnirnar byggjum við á þeirri undirstöðu sem hefur borið íslensk samfélög uppi frá upphafi og sköpum um leið ný tækifæri til framtíðar.
Lagaumgjörð hafna þarf að endurspegla þetta mikilvægi þeirra og gera þeim kleift að sinna hlutverki sínu.
Kallað hefur verið eftir heildarendurskoðun hafnalaga, en núgildandi lög eru frá árinu 2003. Slík endurskoðun er umfangsmikið verkefni sem tekur tíma. Í mínu ráðuneyti ákváðum við því að hefjast þegar handa við endurskoðun gjaldaákvæðis laganna. Þar eru brýn úrlausnarefni sem snerta daglegan rekstur hafnanna, fjárhagslegan styrk þeirra og möguleika til uppbyggingar. Það ríkir þó vilji til þess að hefja heildarendurskoðun laganna þegar vinnu við gjaldaákvæðið er lokið.
Eitt helsta markmið þeirrar vinnu er að auðvelda rekstraraðilum hafna að vinna fullnægjandi kostnaðargreiningu og reikna þjónustugjöld á skýrum og traustum grunni. Dómaframkvæmd sýnir að þetta getur verið vandasamt. Í rekstri hafna er oft erfitt að sundurgreina kostnað með þeim afdráttarlausa hætti sem raunkostnaðarreglan gerir kröfu um.
Sömu grunninnviðir þjóna ólíkum notendahópum samtímis. Kostnaðurinn er því samofinn og verður ekki alltaf skipt með nákvæmni á einstaka þjónustuþætti. Lögin þurfa að taka mið af þessum veruleika og veita skýran grundvöll fyrir gjaldtöku.
Þá tel ég upptalningu gildandi laga á heimilum þjónustugjöldum vera of ósveigjanlega. Starfsemi hafna tekur stöðugum breytingum og nýjar atvinnugreinar hafa haslað sér þar völl. Hafnirnar þurfa svigrúm til að bregðast við þeirri þróun og standa undir þeirri aðstöðu og þjónustu sem kallað er eftir.
Ég hef jafnframt falið ráðuneyti mínu að skoða sérstaklega heimild til þess að taka tillit til arðsemi. Þar þarf að vera skýrt hverjum er heimilt að taka út arð, við hvaða aðstæður og hvernig kröfur um arðsemi samrýmast eðli hafnargjalda. Áður en til arðgreiðslna kemur verður að tryggja það fjármagn sem hafnirnar þurfa til viðhalds og endurnýjunar. Um það þarf að ríkja skýrleiki, óháð rekstrarformi.
Einnig er verið að skoða möguleika á einkaréttarlegri gjaldtöku á tilteknum sviðum. Í því sambandi er sérstaklega horft til stöðu félagahafna sem reknar eru sem hlutafélög eða sameignarfélög samkvæmt hafnalögum.
Við þessa endurskoðun þurfum við að horfa til fleiri þátta en gjaldtökunnar einnar. Samkeppni, byggðaþróun og framtíð sjóflutninga skipta þar verulegu máli.
Við skoðum hvernig bregðast megi við áliti Samkeppniseftirlitsins um samkeppnishindranir í sjóflutningum. Jafnframt leggjum við áherslu á stöðu smærri hafna og atvinnulífsins sem á þær treystir. Lagaumgjörðin þarf að styðja við þessar hafnir og auðvelda og hvetja til sameiningar þar sem hún getur styrkt reksturinn og þjónustuna.
Strandflutningar eru einnig sérstaklega til skoðunar. Starfshópur um strandsiglingar, sem ég skipaði haustið 2025 og skilaði skýrslu í febrúar á þessu ári, lagði meðal annars til að gjaldakafli hafnalaga yrði endurskoðaður með það að markmiði að hafnir gætu betur stutt við þróun strandflutninga. Sú tillaga er nú hluti af endurskoðuninni.
Markmiðið er að skapa höfnum skýra og trausta lagaumgjörð sem tekur mið af fjölbreyttu hlutverki þeirra. Þær þurfa fjárhagslegan styrk til að viðhalda innviðum, bæta þjónustu og mæta nýjum tækifærum. Þannig tryggjum við að hafnirnar verði áfram sú öfluga undirstaða atvinnulífs, byggðar og samgangna sem íslenskt samfélag reiðir sig á.
Kæru gestir.
Ég hef heyrt að á þessum þingum fari saman gagnlegar umræður og góður félagsskapur, og það tel ég vera góða uppskrift að árangursríku þingi.
Ég óska ykkur góðra og gagnlegra umræðna um þau mikilvægu verkefni sem fram undan eru. Megið þið snúa héðan með nýjar hugmyndir og enn meiri kraft til að efla hafnirnar okkar og samfélögin sem á þeim byggja.
Góða skemmtun og takk fyrir mig.