Frá hraða til áfallaþols - ávarp á netöryggisráðstefnu Fjarskiptastofu
Ávarp á netöryggisráðstefnu Fjarskiptastofu 27. október
Ísland hefur náð miklum árangri í uppbyggingu fjarskiptainnviða. Vegferðin hefur tekið nær aldarfjórðung og byggst á skýrri framtíðarsýn, fjárfestingu markaðsaðila, stuðningi stjórnvalda og víðtæku samstarfi með það markmið að landsmenn hafi aðgang að nútímafjarskiptum óháð búsetu.
Uppbyggingin hefur gert fólki kleift að starfa, stunda nám, reka fyrirtæki og sækja þjónustu víðar um land en áður og stutt við byggðir, ferðaþjónustu, sjávarútveg, landbúnað, menntun og opinbera þjónustu svo fátt eitt sé nefnt. Ísland er nú eitt fremsta stafræna samfélag heims.
Skipulagðri ljósleiðaravæðingu heimila og fyrirtækja lýkur á næsta ári og háhraðafarnet ná til sífellt stærri hluta landsins, stofnvegakerfisins og miðanna umhverfis Ísland. Það er mikið samfélagslegt afrek. Þar með lýkur stórum áfanga en annar tekur við. Næsta verkefni er að tryggja að fjarskiptin sem samfélagið reiðir sig á séu ekki aðeins hröð og víðtæk, heldur líka áfallaþolin.
Áfallaþol fjarskipta er forsenda þess að nútímasamfélag virki. Þegar sími, net, neyðarsamskipti, opinber þjónusta, atvinnustarfsemi og orkuinnviðir byggja öll á stafrænum tengingum getur rof á fjarskiptum orðið gríðarlegt samfélagslegt áfall. Fyrir fólk á landsbyggðinni snýst áfallaþol um að ná í 112, halda sambandi við heilbrigðisþjónustu, reka fyrirtæki í óvissuástandi, sinna búrekstri, tryggja öryggi ferðamanna og halda sambandi á sjó.
Staða heimsmála hefur einnig breyst. Netárásir, fjarskiptasvik, skemmdarverk, árásir á sæstrengi og trúverðugri svikatilraunir með aðstoð nýrrar tækni eru áskoranir sem við stöndum frammi fyrir hér á landi. Ísland er gríðarlega vel tengt og tæknivætt samfélag. Það er styrkleiki, en kallar jafnframt á að öryggi og áfallaþol stafrænna innviða sé tekið alvarlega.
Áður var eðlilegt að tala um fjarskipti og netöryggi sem aðskilda málaflokka. Fjarskipti snerust um öfluga dreifingu og þjónustugæði en netöryggi um varnir gegn stafrænum ógnum. Í dag eru þessi mörk mun óskýrari. Fjarskiptainnviðir eru grunnur stafræns öryggis og netöryggi er forsenda þess að fjarskiptakerfi geti sinnt hlutverki sínu með áreiðanlegum hætti. Ljósleiðarar, farnet, sæstrengir, gagnaver og stafrænar þjónustur mynda saman grunnkerfi samfélagsins. Veikist einn hluti mun það hafa áhrif á marga aðra.
Á næstu árum hverfa eldri fjarskiptakerfi eða dragast verulega saman. Koparkerfið verður bráðlega tekið úr notkun og eldri 2G og 3G farnet heyra þegar sögunni til. Sjónvarpsdreifing, neyðarsamskipti og önnur þjónusta færast því í auknum mæli yfir á stafræn net.
Þessi þróun felur í sér mikil tækifæri. Nýrri kerfi eru hraðvirkari, hagkvæmari og geta stutt við nýjar lausnir í atvinnulífi, opinberri þjónustu og daglegu lífi fólks. Þau skapa tækifæri fyrir fjarvinnu, fjarnám, fjarlækningar, snjallari samgöngur, sjálfvirkni, gagnadrifna þjónustu og nýsköpun um land allt.
En samþættingin skapar líka nýja áhættu. Þegar mörg samfélagsleg verkefni reiða sig á sömu grunnkerfi verður enn mikilvægara að þau haldist starfhæf þegar mest á reynir. Það þarf að huga að varaleiðum, skýrum viðbrögðum og nægri fjárfestingu í öryggi.
Við þurfum því að spyrja nýrra spurninga. Hvernig tryggjum við að fjarskipti haldist uppi þegar náttúruvá eða stórfelld rekstraráföll verða? Hvernig verndum við sæstrengina? Hvernig tryggjum við að neyðarsímtöl berist, líka þegar tækni breytist? Hvernig tryggjum við fjarskipti á stofnvegum, í dreifðum byggðum, á hálendinu og á miðunum? Hvernig eflum við netöryggi mikilvægra innviða án þess að leggja óraunhæfar byrðar á þá sem eiga að uppfylla nýjar kröfur? Hvernig drögum við úr fjarskiptasvikum og netglæpum sem bitna á almenningi?
Þetta eru ekki spurningar sem stjórnvöld geta svarað ein. Þær kalla á samtal við fjarskiptafyrirtæki, sveitarfélög, atvinnulíf, öryggissérfræðinga, félagasamtök og almenning um land allt.
Með þetta í huga hóf innviðaráðuneytið fyrr í sumar forsamráð á samráðsgátt stjórnvalda um efnistök grænbókar um fjarskipti og netöryggi. Grænbók er opið umræðuskjal stjórnvalda þar sem staða mála, helstu álitaefni og mögulegir valkostir eru sett fram til samráðs áður en endanleg stefna er mótuð. Með forsamráðinu var leitast við að fá fram sjónarmið um hvaða viðfangsefni og álitaefni þurfi að liggja til grundvallar vinnunni fram undan. Málaflokkurinn er of mikilvægur og breytist of hratt til að stjórnvöld skilgreini einhliða í upphafi hvað skipti mestu máli.
Umsagnir sýna að umræðan er gagnleg. Þar koma fram ólík sjónarmið um fjarskiptainnviði, netöryggi, NIS2-regluverkið, neyðarsamskipti, landsbyggð, fjarskiptasvik, gervigreind, sveitarfélög og notendur með ólíkar þarfir. Sum sjónarmið lúta að því sem ríkið þarf að gera betur. Önnur minna á að auknar kröfur þurfa að vera skýrar, málefnalegar, áhættumiðaðar og framkvæmanlegar. Bæði sjónarmiðin skipta máli.
Stjórnvöld bera skýra ábyrgð á að móta stefnu, innleiða nauðsynlegt regluverk, tryggja virkt eftirlit og grípa inn í þar sem almannahagsmunir, markaðsbrestur eða þjóðaröryggi kalla á það. En raunverulegt áfallaþol verður ekki tryggt af stjórnvöldum einum og sér. Það verður til í daglegum ákvörðunum þeirra sem reka kerfin, kaupa þjónustu, hanna lausnir, uppfæra búnað, prófa varaleiðir, fræða notendur og bregðast við þegar atvik verða.
Verkefnið fram undan er því sameiginlegt. Ríkið á að skapa skýran og fyrirsjáanlegan ramma. Markaðsaðilar, sveitarfélög, stofnanir og notendur þurfa jafnframt að leggja sitt af mörkum innan þess ramma. Öryggi fjarskipta og netöryggi samfélagsins verða ekki keypt, fyrirskipuð eða útfærð af einum aðila.
Við stöndum vel að vígi. Ísland hefur byggt upp öfluga stafræna innviði og nýtur þess í atvinnulífi, þjónustu og búsetuskilyrðum um allt land. En góð staða í dag tryggir ekki sjálfkrafa góða stöðu á morgun. Samkeppnishæfni þjóða mun í auknum mæli ráðast af því hvort þær búi yfir öruggum, aðgengilegum og áfallaþolnum stafrænum grunnkerfum. Þar skiptir ekki aðeins máli að tengingarnar séu hraðar. Þær þurfa að virka þegar mest á reynir.
Áfallaþol í fjarskiptum og netöryggi er því byggðamál. Það er atvinnumál. Það er neytendamál. Það er öryggismál. Það er þjóðhagslegt hagsmunamál. Og það er eitt af lykilviðfangsefnum næsta áfanga í stafrænni þróun Íslands.
Við höfum náð miklum árangri með framsýni og samstarfi. Nú þurfum við að byggja á þeim grunni og horfa til framtíðar. Markmiðið er skýrt: að Ísland verði áfram í fremstu röð stafrænna samfélaga, ekki aðeins vegna þess að hér séu hröð fjarskipti, heldur vegna þess að þau séu örugg og áfallaþolin — fyrir fólk, fyrirtæki og byggðir um land allt.