05 nóvember 2026
/

Sóknarbolti fyrir íslenskt atvinnulíf

Greiður aðgangur að erlendum mörkuðum og frjáls viðskipti eru ein helsta forsenda vaxtar og verðmætasköpunar í atvinnulífinu. Þetta á ekki síst við um lítið og útflutningsdrifið hagkerfi eins og okkar og því er eitt mikilvægasta verkefni stjórnvalda hverju sinni að tryggja íslenskum fyrirtækjum sem bestan aðgang að erlendum mörkuðum og gæta hagsmuna þeirra í alþjóðaviðskiptum.

Undanfarnar vikur hef ég lagt sérstaka áherslu á þetta mikilvæga verkefni með heimsóknum og samtölum á mikilvægum mörkuðum okkar í Bandaríkjunum og Asíu.

Sterk tengsl og aukin tækifæri í Bandaríkjunum

Í byrjun október tók ég á móti utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Marco Rubio, í heimsókn hans til Íslands. Heimsóknin var mikilvægt tækifæri til að ræða sameiginlega hagsmuni ríkjanna og jafnframt vitnisburður um þau sterku tengsl sem ríkja milli Íslands og Bandaríkjanna.

Eðli málsins samkvæmt voru öryggis- og varnarmál ofarlega á dagskrá, en við ræddum jafnframt leiðir til að efla rótgróið viðskiptasamband ríkjanna enn frekar. Þar lögðum við meðal annars áherslu á aukið samstarf á sviði viðskipta með lyf- og lækningavörur og ferðaþjónustu. Þar að auki sammæltumst við um að hefja víðtækt efnahagssamráð með þátttöku fyrirtækja og fjárfesta frá báðum ríkjum. Eftirfylgni við samtöl okkar er þegar hafin og finnum við fyrir miklum áhuga hjá bandarískum stjórnvöldum og atvinnulífi á auknu samstarfi við íslensk fyrirtæki.

Í kjölfarið leiddi ég sendinefnd íslenskra fyrirtækja til Minneapolis í samstarfi við Amerísk-íslenska viðskiptaráðið og Íslandsstofu. Þar heimsóttum við höfuðstöðvar bandarískra stórfyrirtækja og kynntumst betur bandarísku viðskiptalífi. Við hittum einnig fulltrúa íslenska nýsköpunarfyrirtækisins Neckcare, sem hefur náð eftirtektarverðum árangri á bandarískum markaði. Með lausn sem byggir á íslensku hugviti hefur fyrirtækinu tekist, í samstarfi við bandaríska aðila, að bæta líf og heilsu þúsunda viðskiptavina og skapa um leið verðmæti. Árangur Neckcare er gott dæmi um hvernig íslenskar hugmyndir geta vaxið og dafnað á stórum alþjóðlegum mörkuðum.

Bandaríkin eru okkar stærsti einstaki útflutningsmarkaður og þrátt fyrir óvissu og ólgusjó í alþjóðaviðskiptum hefur okkur tekist vel að gæta hagsmuna okkar þar. Öflug, markviss og framsækin hagsmunagæsla gagnvart bandarískum stjórnvöldum hefur skipt þar sköpum.

Víetnam opnar nýjar dyr

Frá Minneapolis lá leiðin til Víetnam þar sem ég undirritaði fyrir hönd Íslands nýjan fríverslunarsamning EFTA-ríkjanna og Víetnam. Landið er ört vaxandi hundrað milljóna markaður sem býður upp á mikil tækifæri fyrir íslenska útflytjendur, ekki síst á sviði sjávarútvegs og jarðhita. Víetnam er öflug fiskveiðiþjóð en þar eru jafnframt ríkar auðlindir af vannýttum jarðvarma. Á báðum sviðum getur íslenskt hugvit, reynsla og þekking komið að góðum notum.

EFTA-ríkin hafa nú gert 36 fríverslunarsamninga sem ná til 51 ríkis. Þar fyrir utan veitir EES-samningurinn okkur aðgang að innri markaði 30 ríkja á lykilmörkuðum í Evrópu. Samanlagt er þetta eitt víðfeðmasta net fríverslunarsamninga á byggðu bóli og greiðir leið íslenskra fyrirtækja inn á markaði með tæplega fimm milljarða íbúa.

Íslenskur sjávarútvegur sækir fram í Kína

Mánuðinum lauk ég svo á heimsókn til kínversku hafnarborgarinnar Qingdao, þar sem ég leiddi sendinefnd íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja til þátttöku á stærstu sjávarútvegssýningu Asíu. Íslenskar sjávarafurðir og tækniþekking í sjávarútvegi eru í fremstu röð á heimsvísu og tækifærin á hinum risavaxna kínverska markaði eru mikil. Beint flug milli landanna skapar meðal annars ný og aukin tækifæri til að flytja ferskan fisk frá Íslandi til kínverskra neytenda og þá veitir fríverslunarsamningur Íslands og Kína frá árinu 2014, íslenskum útflytjendum mikilvægt samkeppnisforskot. Það verður spennandi að fylgjast með íslenskum fyrirtækjum nýta sér þessi tækifæri á næstu misserum.

Í lok heimsóknarinnar átti ég fund með Wang Yi, utanríkisráðherra Kína í Peking. Þar ræddum við meðal annars mikilvægi frjálsra og fyrirsjáanlegra viðskipta og ákváðum að hefja samtal um mögulega útvíkkun loftferðasamnings ríkjanna og greiningu á tækifærum til uppfærslu á fríverslunarsamningnum.

Virk og óþreytandi hagsmunagæsla sem skilar árangri

Þetta eru aðeins nokkur dæmi um þá virku hagsmunagæslu sem utanríkisþjónusta Íslands sinnir hverju sinni, ekki síst á vettvangi EES-samstarfsins. Verkefnið er bæði fjölbreytt og mikilvægt og snýst í grunninn um að tryggja að íslensk fyrirtæki hafi svigrúm til að vaxa og sækja fram á nýja markaði og nýta þau tækifæri sem bjóðast.

Auk Bandaríkjanna og Asíu hefur hagsmunagæslan í Evrópu verið öflug. Alls staðar hef ég það sem upplegg að gæta hagsmuna Íslands og lýsa sjónarmiðum okkar og sérstöðu landsins.

Við þetta má bæta að auk þeirra heimsókna, sem ég hef farið í, þá hafa á þessu ári heimsótt okkur á Íslandi utanríkisráðherrar ekki aðeins Bandaríkjanna og Kanada, nú síðast, heldur líka Þýskalands og Frakklands, Spánar, Noregs, Hollands, Lúxemborgar og Úkraínu, sem og Slóvakíu, Austurríkis og Grænlands.

Ég held ég geti fullyrt að sjaldan eða aldrei hafi annar eins fjöldi ráðherra heimsótt Ísland og ég hef ekki einu sinni talið upp alla varnarmálaráðherrana sem líka hafa komið. Þetta heitir hagsmunagæsla og hún er gríðarlega mikilvæg.

Ég mun, hér eftir sem hingað til, leggja ríka áherslu á að utanríkisþjónustan standi þétt við bakið á íslensku atvinnulífi og fylgi viðskiptahagsmunum okkar eftir af festu. Það gerum við með því að opna dyr, byggja upp tengsl, ryðja viðskiptahindrunum úr vegi og fylgja eftir gerðum samningum. Í nánu samstarfi við atvinnulífið getum við tryggt að hagsmunagæslan skili raunverulegum árangri fyrir íslenska þjóð. Þannig styðjum við við hugvit og framtak íslenskra fyrirtækja og sköpum grundvöll fyrir fjölbreyttari störf, aukna verðmætasköpun og bætt lífskjör hér heima.

Við erum staðráðin í að halda boltanum á lofti, sækja fram og skapa íslensku atvinnulífi og fyrirtækjum fleiri færi.

Ef við hugum að sókninni er sigurinn vís.

Grein eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar, sem birtist í Morgunblaðinu 5. nóvember 2026.

Var efnið hjálplegt?