Hoppa yfir valmynd
25. janúar 2019 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Undirbúningur botnrannsóknar hafinn vegna nýs fjarskiptasæstrengs

Möguleg leið nýs fjarskipta-sæstrengs (IRIS) milli Íslands og Írlands. - mynd

Fjarskiptasjóður og Farice ehf. undirrituðu 21. desember sl. þjónustusamning vegna ársins 2019 en félagið á og rekur fjarskiptasæstrengina FARICE-1 og DANICE sem tengja Ísland við Evrópu. Með samningnum tekur Farice að sér m.a. undirbúning og framkvæmd botnrannsókna sem eru nauðsynlegur þáttur í undirbúningi lagningar á nýjum fjarskipta-sæstreng milli Íslands og Evrópu.

Einkaaðilar hafa um langt árabil kynnt áform um lagningu á sæstrengjum hingað til lands án þess að slíkum áformum hafi verið hrint í framkvæmd.

Kortlagning sjávarbotns liggi fyrir í sumar
Vinna við undirbúning verkefnisins er þegar hafin. Gert er ráð fyrir að rannsóknarskip ljúki kortlagningu sjávarbotns síðla sumars með það fyrir augum að heildstæð niðurstaða rannsóknarinnar liggi fyrir fljótlega í kjölfarið.

Vinna sérfræðinga Farice felst m.a. í því að leita eftir, meta og nýta eftir atvikum fyrirliggjandi upplýsingar og gögn sem flýtt geta framkvæmd verkefnisins og stuðlað að hagkvæmni.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um næstu skref að botnrannsóknum loknum.

Nánar um þjónustusamning við Farice ehf.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum