Hoppa yfir valmynd
14. febrúar 2019 Innviðaráðuneytið

Stefna mótuð um almenningssamgöngur fyrir allt landið

Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra á kynningarfundi í Perlunni um nýja stefnumótun í almenningssamgöngum fyrir landið allt. - mynd

Grunnur að fyrstu heildarstefnu ríkisins um almenningssamgöngur fyrir allt landið hefur verið mótuð og er nú til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda. Starfshópur sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra skipaði leggur til að almenningssamgöngur með flugi, ferjum og almenningsvögnum myndi eina sterka heild og að boðið verði upp á eitt leiðarkerfi fyrir allt landið. Markmiðið er auka hlutdeild almenningssamgangna í ferðum milli byggða á Íslandi og stuðla þannig að umhverfisvænni, öruggari og þjóðhagslega hagkvæmari umferð um allt land.

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra segir stefnuna rökrétt framhald af nýrri samgönguáætlun sem Alþingi hefur samþykkt. Í grein sem ráðherra skrifaði í Fréttablaðið í dag segir: „Sterkt almenningssamgöngukerfi um land allt, sem tengir saman byggðakjarna landsins og höfuðborgarsvæðið við landsbyggðina, er forsenda þess að jafna stöðu landsmanna og færa okkur nær hvert öðru. ... Nýrri stefnu ríkisins um almenningssamgöngur sem mótuð hefur verið í fyrsta sinn er ætlað að tryggja að þær verði raunhæfur valkostur fyrir alla landsmenn.“

Eitt leiðarkerfi og sameiginleg upplýsingagátt
Í nýju stefnumótuninni er miðað við að þróa eitt samtengt leiðarkerfi á landi, láði og legi. Skilgreindar eru fimm stærri skiptistöðvar á landinu þar sem huga þarf að því að skipuleggja samgöngumiðstöðvar. Þær eru á höfuðborgarsvæðinu, Borgarnesi, Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi. Sjö minni skiptistöðvar yrðu einnig í kerfinu fyrir afmarkaðri svæði.

Stefnt er að því að öllum upplýsingum um áfangastaði og tímasetningar í leiðarkerfi almenningssamgangna verði á einni sameiginlegri upplýsingagátt. Á þeim vef verði hægt að fá ferðatillögur í rauntíma, sem tengir saman mismunandi leiðir og ferðamáta og bjóði upp á kaup á farmiðum alla leið.

Viðmið um þjónustustig og fargjöld lækkuð
Í skýrslunni er fjallað um sett verði samræmd viðmið um þjónustustig almenningssamgangna um land allt. Fjárveitingar taki mið af þjónustustigi hverrar leiðar til að tryggja gagnsæi og treysta rekstrargrundvöll.

Þá er lagt til að fargjöld í almenningssamgöngum verði lækkuð og þjónustan gerð aðgengilegri almenningi. Í nýrri samþykktri samgönguáætlun er gert ráð fyrir að fargjöld í innanlandsflugi verði lækkuð í þessu skyni.

Loks telur starfshópurinn mikilvægt að fjárfest verði í innviðum almenningssamgangna, hvort tveggja með uppbyggingu samgöngumiðstöðva á stórum skiptistöðvum og hefðbundnum biðskýlum víða um land.

Skýrsla og tillögur í samráðsgátt
Hægt er að kynna sér skýrslu og tillögur starfshópsins um heildstæða stefnu í almenningssamgöngum í samráðsgátt stjórnvalda. Öllum er frjálst að senda inn umsögn eða ábendingar. Umsagnarferlið er opið í þrjár vikur til og með fimmtudagsins 7. mars.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum