Hoppa yfir valmynd
10. janúar 2020 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Nýjar tímasetningar kynningarfunda um Hálendisþjóðgarð

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, heldur á næstu dögum átta fundi vítt og breitt um landið þar sem kynnt verða áform um stofnun Hálendisþjóðgarðs. Í síðustu viku voru fyrirhugaðir fundir um allt land sem fresta þurfti vegna veðurs.

Í samráðsgátt stjórnvalda má finna frumvarp er lýtur að stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands, á landsvæði sem er í sameign þjóðarinnar; þjóðlendum og friðlýstum svæðum innan miðhálendisins. Þetta er í samræmi við tillögur nefndar fulltrúa allra þingflokka og stjórnvalda, bæði ríkis og sveitarfélaga, sem vann að undirbúningi stofnunar þjóðgarðsins.

Á fundunum mun ráðherra m.a. fara yfir forsendur og markmið með stofnun Hálendisþjóðgarðs og kynna helstu atriði frumvarpsins.

Fundirnir verða haldnir á eftirtöldum stöðum:

Sunnudagur 12. janúar

  • 11:00 Reykjadalur, Félagsheimilið Breiðumýri 
  • 16:00 Húnavatnshreppur, Húnavallaskóli 
  • 20:00 Borgarnes, Hótel Hamar

Mánudagur 13. janúar

  • 17:00 Reykjavík, Veröld – hús Vigdísar, fyrirlestrasalur. Fundurinn verður í beinu streymi á netinu.

Þriðjudagur 14. janúar

  • 19:30 Egilsstaðir, Hótel Valaskjálf

Miðvikudagur 15. janúar

  • 13:00 Öræfi, Hótel Skaftafell í Freysnesi
  • 20:00 Hvolsvöllur, Midgard Base Camp

Fimmtudagur, 16. janúar

  • 20:00 Biskupstungur, félagsheimilið Aratunga

Fundirnir eru öllum opnir – verið velkomin.

Nánar um drög að frumvarpi um Hálendisþjóðgarð
Spurt og svarað um Hálendisþjóðgarð
Frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð í samráðsgátt stjórnvalda


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum