Hoppa yfir valmynd
23. júní 2020 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Matvælaráðuneytið

Ný aðgerðaáætlun í loftslagsmálum – Ísland uppfyllir skuldbindingar og gott betur

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra á kynningarfundi um Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum í dag.  - myndSigurjón Ragnar
  • Með aðgerðunum nær Ísland 35% samdrætti fram til ársins 2030 - alþjóðlegar skuldbindingar nema 29% samdrætti
  • Gróft mat sýnir að aðgerðir í mótun geta skilað 5-11% samdrætti til viðbótar, eða samtals 40-46%
  • Dregið úr losun um ríflega milljón tonn CO2-ígilda
  • 48 aðgerðir, þar af 15 nýjar

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra kynntu aðra útgáfu aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum í dag. Með aðgerðunum er áætlað að losun gróðurhúsalofttegunda á beinni ábyrgð Íslands muni hafa dregist saman um ríflega eina milljón tonna CO2-ígilda árið 2030 miðað við losun ársins 2005. Þetta þýðir að Ísland nær alþjóðlegum skuldbindingum sínum í loftslagsmálum um 29% samdrátt og gott betur, eða 35%. Til viðbótar eru aðgerðir sem eru í mótun taldar geta skilað 5-11%, eða samtals 40-46% samdrætti.



Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra: „Ákvarðanir og stefnumótun sem byggja á vísindum eru traustur grunnur fyrir árangur, það höfum við verið minnt rækilega á í vor. Aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum byggir á slíkum grunni og það er ánægjulegt. Það er skylda okkar að tryggja hagsmuni og velferð komandi kynslóða og við gerum það með skýrum aðgerðum í loftslagsmálum sem stuðla að því að koma í veg fyrir ófyrirsjáanlegar afleiðingar hamfarahlýnunar. Ég er stolt af því að leiða ríkisstjórn sem leggur hér fram áætlun sem sýnir fram á að við getum náð metnaðarfullum markmiðum í loftslagsmálum.“

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra: „Ný aðgerðaáætlun sýnir að blaðinu hefur verið snúið við í loftslagsmálum á Íslandi. Strax á fyrstu mánuðum ríkisstjórnarinnar var ráðist í aðgerðir í loftslagsmálum og fjármagni beint inn í málaflokkinn. Með þeim aðgerðum sem við höfum gripið til og hyggjumst grípa til munum við ná mun meiri árangri en alþjóðlegar skuldbindingar samkvæmt Parísarsamkomulaginu krefjast af okkur. Því ber svo sannarlega að fagna. Við munum halda ótrauð áfram að tryggja þau umskipti sem nauðsynleg eru.“

46 milljörðum króna verður varið til helstu aðgerða í loftslagsmálum á fimm ára tímabili, 2020-2024. Áætlunin samanstendur af 48 aðgerðum, þar af 15 nýjum, sem hafa bæst við frá því að fyrsta útgáfa áætlunarinnar var gefin út haustið 2018. Samhliða víðtæku samráði við gerð nýrrar útgáfu áætlunarinnar hefur verið lögð áhersla á að hrinda aðgerðum strax af stað. Þannig eru 28 aðgerðir af 48 þegar komnar til framkvæmda.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra: „Við erum að ná alþjóðlegum skuldbindingum okkar og gott betur – ekki með því að leggja strangar kvaðir á heimilin og atvinnulífið heldur með fjölbreyttri flóru aðgerða sem ná víða um samfélagið og ýta undir þá þróun sem þegar á sér stað í átt að loftslagsvænna hagkerfi. Framreikningar á losun draga fram að aðgerðir stjórnvalda og tækniþróun hafa nú þegar leitt til þess að losun gróðurhúsalofttegunda mun minnka á næstu áratugum, en með aðgerðaáætluninni er lagður grunnur að enn meiri árangri.“

Breyttar ferðavenjur fá nú aukið vægi, úrgangsmál og sóun eru dregin sérstaklega fram, markvisst er ýtt undir ýmiss konar loftslagsvænar breytingar í samfélaginu og áhersla er lögð á aðgerðir þar sem ríkið getur leitt mikilvægar samfélagsbreytingar með umskiptum í eigin starfsemi.

Nýjar aðgerðir sem koma inn í áætlunina í kjölfar samráðs eru m.a. aðgerðir til þess að auka innlenda grænmetisframleiðslu, fjölga vistvænum bílaleigubílum, styðja við orkuskipti í þungaflutningum, fanga kolefni frá stóriðju, bæta fóðrun búfjár til að draga úr iðragerjun og draga úr losun frá byggingariðnaði.

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra: „Loftslagsmálin eru eitt brýnasta viðfangsefni samtímans og mikilvægt að þjóðir heims hafi tekið höndum saman um að vinna að þeim. Áætlun Íslands er metnaðarfull. Eitt af því sem er mikilvægt er að almenningur geti tekið þátt í þeim breytingum sem verða að eiga sér stað og finni að framlag hvers og eins skipti máli. Orkuskipti í samgöngum leika þar stórt hlutverk. Það er líka ljóst að hagsmunir Íslands í því að skipta yfir í vistvæna orkugjafa eru einnig efnahagslegir því margir milljarðar streyma nú úr landi til kaupa á jarðefnaeldsneyti.“

Að baki þessari nýju útgáfu áætlunarinnar liggja ítarlegir útreikningar á ávinningi aðgerðanna sem settar eru fram. Matið var í höndum sérfræðinga umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, Umhverfisstofnunar og teymis vísindafólks við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Unnt var að meta ávinning 23 aðgerða en með þeim er talið að Ísland nái 35% samdrætti í losun fyrir 2030. 16 aðgerðir eru í mótun og verða því metnar síðar en þær eru taldar geta skilað 5-11% samdrætti samkvæmt grófu mati sérfræðinga. Níu aðgerðir eru þess eðlis að ógerlegt er að leggja mat á áhrif þeirra eða mat á ekki við.

Þessi önnur útgáfa aðgerðaáætlunarinnar sem kynnt var í dag verður áfram í stöðugri endurskoðun líkt og fyrri útgáfa. Aðgerðir verða uppfærðar og nýjum bætt við eftir því sem þörf krefur til að tryggja áframhaldandi árangur. Hægt verður að fylgjast með framgangi áætlunarinnar á vefsvæðinu www.co2.is.

Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum var unnin af verkefnisstjórn sem í sitja fulltrúar forsætisráðherra, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, mennta- og menningarmálaráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Sambands íslenskra sveitarfélaga, undir forystu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.

Áætlunin er nú komin í Samráðsgátt stjórnvalda til næstu þriggja mánaða þar sem almenningi gefst kostur á að koma með umsagnir og ábendingar til 20. september næstkomandi.

 

Ítarefni

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum