Hoppa yfir valmynd
10. febrúar 2021 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Frumvarp um markmið um kolefnishlutleysi í samráðsgátt

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur sett til kynningar í Samráðsgátt drög að frumvarpi sem ætlað er að festa í lög markmið um að ná kolefnishlutleysi Íslands árið 2040. Frumvarpið felur í sér breytingu á lögum um loftslagsmál og er í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar frá árinu 2017. Einnig er fjallað um markmiðið í aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum, sem gefin var út árið 2018 og uppfærð síðastliðið sumar.

Kolefnishlutleysi er lykilþáttur í Parísarsamningnum sem hefur það að markmiði að halda hnattrænni hlýnun innan við 2 °C og eins nálægt 1,5 °C og hægt er. Hnattrænt markmið um kolefnishlutleysi er grundvallaratriði í baráttunni við loftslagsbreytingar og afleiðingar þeirra og er Ísland í hópi þeirra fjölmörgu ríkja heims sem hafa þegar sett fram markmið um kolefnishlutleysi.

Eigi það markmið að nást þarf að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda alls staðar þar sem því verður við komið og auka bindingu kolefnis í jarðvegi, gróðri, bergi eða með öðrum varanlegum hætti. Þó Ísland sé framarlega er kemur að nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa, er samfélagið enn að miklu leyti háð jarðefnaeldsneyti, sérstaklega varðandi samgöngur. Það sama gildir um suma af stærstu atvinnuvegum landsins, s.s. sjávarútveg og ferðaþjónustu og eins má rekja stóran hluta losunar gróðurhúsalofttegunda á Íslandi til stóriðju.

Lögfesting markmiðs um kolefnishlutleysis er mikilvægur áfangi í þeirri vegferð að Íslandi nái að standa við metnaðarfull markmið sín í loftslagsmálum.

„Lögfesting markmiðs um kolefnishlutleysi er mikilvægur áfangi í vegferð okkar í átt að kolefnishlutlausu Íslandi 2040. Þetta er markmið sem krefst breytinga á öllum sviðum samfélagsins. Þess vegna er núna framundan umfangsmikil stefnumótunarvinna þar sem samtal, samráð og samvinna við almenning og hagaðila verður lykilatriði í  að móta leiðina að kolefnishlutlausu Íslandi.“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.

Umsögnum skal skila í Samráðsgátt Stjórnarráðsins eigi síðar en 23. febrúar næstkomandi.

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um loftslagsmál nr. 70/2012 (markmið um kolefnishlutleysi)

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum