Hoppa yfir valmynd
22. febrúar 2021 Utanríkisráðuneytið

Ráðherra fagnar áhuga Grænlendinga á aukinni samvinnu

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, á Arctic Circle árið 2019. - mynd

Tvíhliða samskipti Íslands og Grænlands og niðurstöður skoðanakönnunar sem gefa til kynna að 90% Grænlendinga styðji aukna samvinnu við Ísland voru á meðal umræðuefna í opnunarávarpi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra á rafrænum fundi Hringborðs norðurslóða - Arctic Circle í dag.

Efnt var til fundarins í tilefni af útgáfu skýrslu Grænlandsnefndar utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra í janúar síðastliðnum.

Í erindi sínu ræddi Guðlaugur Þór um nýja skoðanakönnun sem var gerð af Grænlandsháskóla, Ilisimatusarfik, í samstarfi við HS Analyse í Nuuk og Norðurlandadeild Konrad-Adenauer Stiftung í Stokkhólmi. Könnunin er sú fyrsta sem mælir viðhorf Grænlendinga til utanríkismála og í henni birtist mikill stuðningur þeirra við aukið samstarf við Ísland, ekki síst í samanburði við aðrar þjóðir.

„Ég er sannfærður um að áhuginn er síst minni hér á Íslandi,“ sagði utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra. Guðlaugur Þór lagði einnig áherslu á sameiginlega hagsmuni þjóðanna og mikilvægi náinnar samvinnu Grænlands og Íslands, sér í lagi á tímum loftslagsbreytinga þar sem sérstaða Grænlands er mikil.

„Það eru spennandi tímar framundan í tvíhliða samskiptum Íslands og Grænlands og víðtækir möguleikar til samstarfs sem mun styrkja báðar þjóðir,“ sagði Guðlaugur Þór.

Össur Skarphéðinsson, formaður Grænlandsnefndarinnar, flutti einnig erindi og svaraði spurningum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum