Hoppa yfir valmynd
28. júní 2021 Heilbrigðisráðuneytið

Vinnustofa um rétta geðheilbrigðisþjónusta á réttum stað

Vinnustofa um rétta geðheilbrigðisþjónusta á réttum stað - myndMynd: Þorkell/Landspítali

Um 100 fulltrúar veitenda geðheilbrigðisþjónustu og notenda þjónustunnar komu saman á vinnustofu nýverið í þeim tilgangi að rýna þjónustuferla í geðheilbrigðisþjónustu og gera tillögur að úrbótum. Markmiðið er að bæta þjónustu við fólk með geðrænan vanda, auka skilvirkni hennar og draga úr biðlistum. Landspítalinn annaðist skipulag og utanumhald vinnustofunnar sem efnt var til að frumkvæði heilbrigðisráðuneytisins.

Til vinnustofunnar voru boðaðir fulltrúar allra veitenda geðheilbrigðisþjónustu á fyrsta, öðru og þriðja stigi heilbrigðisþjónustu og fulltrúar notenda. Megináhersla vinnustofunnar var að finna leiðir til að tryggja samvinnu milli þjónustustiga og þjónustuveitenda, auk þess að skilgreina hlutverk einstakra þjónustueininga. Miðað er við að afrakstur vinnustofunnar verði tillögur til úrbóta á þessu sviði sem skilað verður til heilbrigðisráðherra um miðjan ágúst. Vinnustofan var haldin undir formerkjunum Rétt geðheilbrigðisþjónusta á réttum stað með skírskotun í markmið heilbrigðisstefnu til ársins 2030.

Heilbrigðisráðherra stóð fyrir geðheilbrigðisþingi í desember á liðnu ári þar sem unnið var að mótun framtíðarsýnar í geðheilbrigðisþjónustu til ársins 2030. Þar komu fram skýrar ábendingar um að skilgreina þurfi og sameinast um heildstæðan þjónustuferil þar sem öll þrjú þjónustustig geðheilbrigðisþjónustu væru samþætt og ynnu saman að því að tryggja notendum og fjölskyldum þeirra samfellda og skilvirka þjónustu. Til að tryggja að raunverulegar úrbætur nái fram að ganga er mikilvægt að veitendur og notendur geðheilbrigðisþjónustu komi saman að því að rýna þjónustuna og vinna að mikilvægu breytingaferli frá upphafi.

Heilbrigðisráðuneytið birti nýverið til umsagnar skýrslu um framtíðarsýn í geðheilbrigðismálum til ársins 2030 en skýrslan er afrakstur geðheilbrigðisþingsins og þeirrar umræðu sem þar fór fram. Umsagnarfrestur er til 6. júlí næstkomandi.

Þorkell Þorkelsson, ljósmyndari Landspítala fylgdist með vinnustofunni og hér fylgja nokkrar mynda hans.

  • Vinnustofa um rétta geðheilbrigðisþjónusta á réttum stað - mynd úr myndasafni númer 1
  • Vinnustofa um rétta geðheilbrigðisþjónusta á réttum stað - mynd úr myndasafni númer 2
  • Vinnustofa um rétta geðheilbrigðisþjónusta á réttum stað - mynd úr myndasafni númer 3
  • Vinnustofa um rétta geðheilbrigðisþjónusta á réttum stað - mynd úr myndasafni númer 4
  • Vinnustofa um rétta geðheilbrigðisþjónusta á réttum stað - mynd úr myndasafni númer 5
  • Vinnustofa um rétta geðheilbrigðisþjónusta á réttum stað - mynd úr myndasafni númer 6
  • Vinnustofa um rétta geðheilbrigðisþjónusta á réttum stað - mynd úr myndasafni númer 7
  • Vinnustofa um rétta geðheilbrigðisþjónusta á réttum stað - mynd úr myndasafni númer 8
  • Vinnustofa um rétta geðheilbrigðisþjónusta á réttum stað - mynd úr myndasafni númer 9
  • Vinnustofa um rétta geðheilbrigðisþjónusta á réttum stað - mynd úr myndasafni númer 10
  • Vinnustofa um rétta geðheilbrigðisþjónusta á réttum stað - mynd úr myndasafni númer 11
  • Vinnustofa um rétta geðheilbrigðisþjónusta á réttum stað - mynd úr myndasafni númer 12

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum