Hoppa yfir valmynd
30. júní 2022 Heilbrigðisráðuneytið

Samtakamáttur hjá viðbragðsteymi bráðaþjónustu

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra - myndMynd: Þorkell/Landspítali

Viðbragðsteymi bráðaþjónustu í landinu fer vel af stað. Megináherslan hefur verið  á að bæta stöðuna á bráðamóttöku Landspítala en samhliða því hefur ýmsum mikilvægum verkefnum til skamms og lengri tíma verið ýtt úr vör.

Heilbrigðisráðherra átti fund með starfsfólki bráðamóttökunnar í Fossvogi 14. júní síðastliðinn ásamt forstjóra Landspítala. Tilgangur fundarins var að upplýsa starfsfólk og ræða  stöðu mála. Ráðherra leggur áherslu á að halda áfram opnu samtali milli ráðuneytisins, viðbragðsteymisins, stjórnenda Landspítala og starfsfólks, sem ber hitann og þungann af álaginu.

Frá því að fundurinn var haldinn er búið er að ráða tvo erlenda sérfræðinga í bráðalækningum til starfa á bráðamóttökunni frá 1. júlí nk. og önnur úrræði voru kynnt sem nú þegar hafa raungerst og farið verður yfir hér á eftir. 

Fjarþjónusta bráðadagdeildar lyflækninga

Landspítali hefur komið á fót fjarþjónustu lyflækninga sem til að byrja með verður opin frá 8.00 á morgnana til 21.00 á kvöldin alla virka daga. Þar starfa hjúkrunarfræðingar og læknar sem taka við símtölum frá tilvísandi læknum á Læknavakt, heilsugæslum, öldrunarstofnunum og sjúkraflutningafólki. Markmiðið er að meta hvaða farvegur henti einstaklingum best og veita ráðgjöf. Már Kristjánsson, forstöðumaður lyflækninga- og bráðaþjónustu Landspítala segir þetta bæta þjónustu við sjúklinga jafnframt því að jafna álagið á bráðamóttöku spítalans (sjá viðtal við Má um fjarþjónustuna). Talið er að þetta fyrirkomulag geti fækkað komum sjúklinga á bráðamóttökuna um 10 – 15%.

Úrlestur myndrannsókna og greining blóðsýna fyrir ,,kragasjúkrahúsin“

Landspítali hefur tekið að sér að lesa úr myndrannsóknum og greina eftir þörfum blóðsýni fyrir sjúkrasvið heilbrigðisstofnananna á Suðurnesjum, Suðurlandi og Akranesi í sumar þegar þess gerist þörf utan dagvinnutíma til að efla þjónustu þessara heilbrigðisstofnanna. Með þessum aðgerðum dregur úr þörf fyrir flutning sjúklinga á bráðamóttöku Landspítala frá nærliggjandi sjúkrahúsum. 

Opnun nýrra endurhæfingar- og hjúkrunarrýma

Þann 1. september opnar sérhæfð endurhæfingarþjónusta fyrir aldraða á vegum Sóltúns öldrunarþjónustu ehf. í Sólvangi í Hafnarfirði. Samningur liggur fyrir um þjónustuna milli Sóltúns og Sjúkratrygginga Íslands. Þar geta 39 einstaklingar dvalið til skamms tíma til endurhæfingar. Gert er ráð fyrir að árlega verði hægt að veita að minnsta kosti 400 einstaklingum þessa þjónustu (nánari upplýsingar um þjónustuna).

Nýtt hjúkrunarheimili í Árborg verður opnað í byrjun september og verða þar 40 rými ætluð einstaklingum af höfuðborgarsvæðinu. Um svipað leyti verða opnuð 20 ný endurhæfingarrými við hjúkrunarheimilið Eir til viðbótar við þau 5 sem þar hafa þegar verið opnuð. 

Breytt þjónusta á Vífilsstöðum

Auglýst hefur verið eftir rekstraraðila til að sinna þjónustu fyrir aldraða á Vífilsstöðum. Annars vegar verða þar skammtímainnlagnir til að veita einfaldari meðferð sem ekki er hægt að sinna í heimahúsi en krefst ekki spítalainnlagnar. Þannig verður um að ræða legudeild fyrir aldraða sem þurfa á heilbrigðisþjónustu eða aukinni umönnun að halda tímabundið t.d. vegna breytinga á líðan eða félagslegum aðstæðum. Markmiðið er að viðkomandi geti útskrifast heim aftur innan tveggja vikna. Hins vegar verður á Vífilsstöðum boðið upp á líknarþjónustu við aldraða einstaklinga sem geta ekki dvalist heima í lokaskeiði lífsins. Gert er ráð fyrir að Velferðarsvið Reykjavíkur, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins og Landspítali geti vísað fólki í innlögn á Vífilsstöðum. Markmiðið verður því að Vífilsstaðir verði markviss þjónusta og mikilvægur hlekkur í þjónustukeðju fyrir aldraða sem öflugur bakhjarl fyrir heimahjúkrun og heimahlynningu og millistig milli þess og Landspítala. Þannig er vonast til að reksturinn muni sem best styðja við þjónustu aldraðra einstaklinga í heimahúsi og á sama tíma létta á innlagnarþunga á Landspítalanum. Stefnt er að því að þróa þjónustuna í samvinnu við nýjan rekstraraðila, heimahjúkrun, heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins og Landspítala.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum