Hoppa yfir valmynd
22. september 2022 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Fléttan – styrkir til innleiðingar nýsköpunar í heilbrigðisþjónustu

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra veitir styrki til innleiðingar nýsköpunar í heilbrigðistækni og -þjónustu. Styrkirnir hafa fengið nafnið Fléttan sem vísar til þess að turnar heilbrigðiskerfisins hafa löngum verið illkleifir nýsköpunarfyrirtækjum og því þörf fyrir hjálparhönd á borð við langa fléttu Garðabrúðu í samnefndu ævintýri. Fléttan eru styrkir sem veittir eru til nýsköpunarfyrirtækja sem skapað hafa áhugaverðar lausnir til að bæta þjónustu við sjúklinga, stytta biðlista og auka skilvirkni kerfisins. Opnað hefur verið fyrir umsóknir.

Frumkvöðla- og sprotafyrirtæki geta sótt um styrk en styrkveitingin er háð því skilyrði að nýsköpunarfyrirtækin eigi í nánu samstarfi við stofnanir eða fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem skuldbinda sig til að innleiða þá nýsköpun sem sótt er um styrki til. Lögð er sérstök áhersla á stuðning við samstarf hins opinbera og einkaaðila um land allt. 

Styrkjum er úthlutað til verkefna sem styðja við innleiðingu nýsköpunar í heilbrigðistæki, -vörum og -þjónustu. Styrkirnir eru samkeppnisstyrkir og er þeim úthlutað til verkefna til eins árs í senn. Hver styrkur getur numið allt að 10 m.kr.

60 m.kr. átaksverkefni um nýsköpun í heilbrigðistækni og -þjónustu

Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fyrri hluta árs 2022 að veita 750 m.kr. í sértækar aðgerðir til að mæta félags- og heilsufarslegum afleiðingum COVID-19. Þar af er 60 m.kr. veitt til háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis til átaksverkefnis um nýsköpun í heilbrigðistækni- og þjónustu. Ráðherra hefur ákveðið að ráðstafa þeim fjármunum til að tryggja innleiðingu nýsköpunar í heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að auka skilvirkni og bæta þjónustu.

Innleiðing nýsköpunar sé mikilvæg fyrir bætta þjónustu og skilvirkni

Sérstakt fagráð leggur mat á umsóknir og verður m.a. horft til þátta á borð við:

  • Mikilvægi verkefnis fyrir innleiðingu nýrra vara, nýrrar þjónustu eða nýrra hugbúnaðarlausna sem geta bætt þjónustu og/eða aukið hagkvæmni í rekstri heilbrigðiskerfis. 
  • Mikilvægi verkefnis fyrir aukna verðmætasköpun og/eða bætta þjónustu.
  • Skalanleiki verkefnis, þ.e.a.s. hvernig umsækjandi sér fram á þróun verkefnisins, stækkun og nýtingu fyrir fleiri innan heilbrigðiskerfisins með það að markmiði að innleiðingin bæti þjónustu við sjúklinga, stytti biðlista og auki skilvirkni kerfisins. 

Umsóknarfrestur er til og með 31. október.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum