Hoppa yfir valmynd
25. október 2022 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Byggjum upp skólaþjónustu til framtíðar – taktu þátt!

Í síðustu viku var tilkynnt um viðamiklar breytingar á menntakerfinu og áform um ný heildarlög um skólaþjónustu. Í þeirri vinnu gegnir samráð við hlutaðeigandi lykilhlutverki til að koma sem best til móts við þarfir haghafa skólasamfélagsins og tengdra þjónustukerfa. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur sent boð til haghafa þar sem þeir eru hvattir til að bjóða sig fram og taka þátt í að móta skólaþjónustu til framtíðar.

Markmið þessara nýju laga er að tryggja jafnræði í þjónustu við börn og ungmenni í leik-, grunn- og framhaldsskólum óháð aldri, uppruna og búsetu, mæta ákalli um aukna ráðgjöf og stuðning við starfsfólk og stjórnendur á vettvangi skólans, efla þverfaglega samvinnu og samþættingu milli skóla- og þjónustustiga í þágu farsældar barna og tryggja öllum skólum faglegt bakland í sínum fjölbreyttu verkefnum.

Ráðherra kallar eftir víðtæku samráði við haghafa skólasamfélagsins og tengdra þjónustukerfa, þar á meðal barna og ungmenna, foreldra, kennara, stjórnenda og starfsfólks leik-, grunn- og framhaldsskóla, frístundaheimila, félagsmiðstöðva, skólaþjónustu og annarra þjónustukerfa.

Öll sem hafa áhuga á þessari vinnu eru hvött til að taka þátt í að móta skólaþjónustu til framtíðar. Samráðshópar munu taka til starfa á næstu vikum og er áhugasömum bent á að skrá sig eða senda ábendingar fyrir lok dags 4. nóvember nk. með því að senda póst á netfangið [email protected] með „Skólaþjónusta“ í efnislínu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum