Hoppa yfir valmynd
10. janúar 2023 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Reykjanesbær tekur á móti 350 flóttamönnum

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, ásamt fulltrúum sveitarfélagsins og beggja ráðuneyta að fundi loknum. - mynd

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, og Nichole Leigh Mosty, for­stöðukona Fjöl­menning­ar­set­urs, hafa undirritað samning um samræmda móttöku flóttafólks í Reykjanesbæ. Samningurinn var undirritaður í Ráðhúsi Reykjanesbæjar í gær og kveður á um að Reykjanesbær taki í samstarfi við stjórnvöld á móti allt að 350 flóttamönnum.

Samræmd móttaka flóttafólks nær til fólks sem fengið hefur alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða hér á landi. Markmiðið er að tryggja flóttafólki samfellda og jafna þjónustu óháð því hvaðan það kemur og í hvaða sveitarfélagi það sest að.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, segir að Reykjanesbær búi yfir mikilli reynslu varðandi móttöku flóttafólks. „Yfirgripsmikil þekking sveitarfélagsins er sannarlega dýrmæt og getur nýst öðrum sveitarfélögum vel. Áskoranirnar eru margar nú þegar aldrei hafa komið fleiri umsækjendur um alþjóðlega vernd til Íslands og í sameiningu geta ríki og sveitarfélög gert þær áskoranir að tækifærum. Einkennisorð Reykjanesbæjar, Í krafti fjölbreytileikans, eiga því sérstaklega vel við núna.“

„Það er mikil uppsöfnuð þekking og reynsla í þessum málum hjá Reykjanesbæ sem mikilvægt er að nýta áfram,“ segir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ. „Reykjanesbær er tilbúinn að deila þessari þekkingu með öllum þeim sveitarfélögum sem ætla að taka þátt í þessu samfélagslega mikilvæga verkefni. Í ljósi nýrra áherslna og aukins samstarfs ríkis og sveitarfélaga um samræmda móttöku flóttafólks, var ákveðið að gera nýjan samning milli Reykjanesbæjar og félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins. Reykjanesbær hvetur öll sveitarfélög til að sýna samfélagslega ábyrgð og taka þátt í móttöku fólks á flótta.“

Þetta er fjórði samningurinn sem undirritaður er um samræmda móttöku flóttafólks á skömmum tíma. Auk Reykjanesbæjar hefur Reykjavík skrifað undir samning við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið sem og sveitarfélögin Árborg og Akureyri.

Í kjölfar undirritunarinnar í Reykjanesbæ fundaði Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, með bæjaryfirvöldum ásamt Guðmundi Inga Guðbrandssyni og fulltrúum beggja ráðuneyta. Greint var frá því hvernig sveitarfélagið tekur á móti flóttafólki og hver umgjörðin er. Reykjanesbær hefur í mörg ár sinnt móttöku flóttamanna, auk þess að vera þátttakandi í tilraunaverkefni um samræmda móttöku flóttafólks. Því til viðbótar hefur bærinn veitt fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd þjónustu á meðan umsókn þeirra hefur verið til meðferðar hjá stjórnvöldum. Mikil þekking er þannig í Reykjanesbæ á málaflokknum.

Ráðherrarnir funduðu jafnframt með bæjaryfirvöldum í Suðurnesjabæ og kynntu sér málefni fylgdarlausra barna á flótta. Mikil aukning varð í fjölda þeirra á síðasta ári og býr Suðurnesjabær yfir mikilvægri reynslu við móttöku þeirra.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum