Hoppa yfir valmynd
17. apríl 2023 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Akranes tekur á móti allt að 80 flóttamönnum

Líf Lárusdóttir, formaður bæjarráðs Akraness, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra. - mynd

Akraneskaupstaður tekur á móti allt að 80 flóttamönnum samkvæmt samningi sem undirritaður hefur verið milli félags- og vinnumarkaðsráðuneytis og bæjaryfirvalda. Þetta er tíundi samningurinn sem gerður er um samræmda móttöku flóttafólks frá því í nóvember sl. Heildarfjöldi flóttafólks samkvæmt samningunum er orðinn um 3.000.

Samræmd móttaka flóttafólks nær til fólks sem fengið hefur alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða hér á landi. Markmiðið er að tryggja flóttafólki samfellda og jafna þjónustu óháð því hvaðan það kemur og í hvaða sveitarfélagi það sest að.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, býður Akranesbæ hjartanlega velkominn í hópinn. „Við fögnum því að fá öflugan liðsauka á Skaganum og ég óska nýjum íbúum bæjarins gæfu og gengis.

„Við látum okkar ekki eftir liggja á Akranesi enda samfélagsleg skylda okkar að taka vel á móti flóttafólki sem glímir við hörmungar í sínu heimalandi. Mikilvægt er að móttaka flóttafólks sé samræmd og að henni fylgi fjármagn líkt og þessi samningur kveður á um og sé unnin í þéttu samstarfi við ríkisvaldið. Þannig tryggjum við að vel takist til sem er að sjálfsögðu markmið okkar allra,“ segir Líf Lárusdóttir, formaður bæjarráðs Akraneskaupstaðar.

Bæjarstjóraskipti hafa orðið á Akranesi en Sævar Freyr Þráinsson lét af störfum fyrir skemmstu og Haraldur Benediktsson er ekki kominn til starfa.

Ítarefni: Vefur um móttöku flóttafólks

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum