Hoppa yfir valmynd
2. maí 2023 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Stórefla stuðning við ungt fólk í viðkvæmri stöðu til að fyrirbyggja brotthvarf af vinnumarkaði

Páll Ásgeir Guðmundsson, Vigdís Jónsdóttir, Guðmundur Ingi Guðbrandsson og Unnur Sverrisdóttur við undirritunina í dag. - mynd

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Páll Ásgeir Guðmundsson, forstöðumaður efnahags- og samkeppnishæfnisviðs hjá Samtökum atvinnulífsins, Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, og Vigdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri VIRK starfsendurhæfingarsjóðs, skrifuðu í dag undir viljayfirlýsingu um stóraukinn einstaklingsmiðaðan stuðning við ungt fólk í viðkvæmri stöðu. Meira en 450 milljónum króna verður varið til verkefnisins yfir þriggja ára tímabil.

Markmiðið er að fyrirbyggja ótímabært brotthvarf ungs fólks með geðraskanir af vinnumarkaði, auk þess að auka samfélagslega virkni ungmenna sem tilheyra svokölluðum NEET-hópi, þ.e. ungt fólk sem er ekki í vinnu, námi eða starfsþjálfun.

  • Vinnumálastofnun mun ráða tíu atvinnulífstengla sem munu veita hópnum einstaklingsmiðaðan stuðning við starfsleit. Um er að ræða nýjung í vinnumarkaðsúrræðum á vegum stofnunarinnar. Alls verður 150 milljónum króna á ári varið til þessa í þrjú ár.

  • VIRK hefur veitt þjónustu á sviði atvinnutengingar frá árinu 2012 en mun fjölga atvinnulífstenglum hjá sér enn frekar. Opnað verður fyrir þjónustuna gagnvart fleiri hópum en áður sem aftur mun auka tækifæri þeirra verulega. Framlag VIRK kemur til viðbótar við ofangreind fjárframlög.

  • Samtök atvinnulífsins munu liðsinna við að tryggja framboð af störfum fyrir ungt fólk í þjónustu atvinnulífstengla. Auk þess munu samtökin efla fræðslu á vinnustöðum um mikilvægi þess að greiða fyrir ráðningum einstaklinga sem tilheyra viðkvæmum hópum.

Samkvæmt samkomulaginu er unnið eftir hugmyndafræði IPS (e. Individual Placement Support) en það er gagnreynd starfsendurhæfing sem skilað hefur framúrskarandi árangri hér á landi sem og annars staðar á Norðurlöndunum. Grunnhugmyndin er sú að hægt sé að finna störf fyrir öll þau sem vilja vinna óháð hindrunum, svo sem af geðrænum eða félagslegum toga.

Samkomulagið er liður í aðgerðum í tengslum við heildarendurskoðun í málefnum örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega sem er eitt helsta forgangsmál Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra. Frítekjumark örorkulífeyrisþega hefur þegar verið nær tvöfaldað og ný lög tekið gildi um lengingu á tímabili endurhæfingarlífeyris sem hvort tveggja er mikilvægt til að stuðla að frekari atvinnuþátttöku ungs fólks og búa til lagalega umgjörð og hagræna hvata til að verkefnið geti gengið vel.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra: „Á yfirstandandi kjörtímabili hefur verið unnið í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu að yfirgripsmiklum breytingum fyrir örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega. Samstarfið sem hér er innsiglað í dag er mikilvægur þáttur í umbyltingu kerfisins því við þurfum að fjölga störfum og tækifærum fyrir ungt fólk á vinnumarkaði. Þetta eru aðgerðir sem hafa fljótt áhrif og skipta máli fyrir allt samfélagið. Umbylting örorkulífeyriskerfisins miðar meðal annars að því að auka velferð og virkni í samfélaginu og fela í sér nýja hugsun þar sem þjónustan miðast að notandanum. Ég er ótrúlega ánægður með að við séum að ýta því úr vör hér í dag með þessum góðu samstarfsaðilum.“

Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar: „Ungir atvinnuleitendur í viðkvæmri stöðu eru þeir sem eru í hvað mestri hættu á að falla út af vinnumarkaðinum til lengri eða skemmri tíma. Það er trú okkar að þetta samstarf muni skila miklum árangri.“

Páll Ásgeir Guðmundsson, forstöðumaður efnhags- og samkeppnishæfnisviðs Samtaka atvinnulífsins: „Samtök atvinnulífsins hafa lengi lagt ríka áherslu á mikilvægi þess að hjálpa fólki aftur til virkni. Nú þegar hafa meira en 300 fyrirtæki skrifað undir samstarfssamninga við VIRK um að útvega einstaklingum vinnu með aðstoð atvinnulífstengla. Þá mun SA koma að fræðslu og vitundarvakningu á vinnustöðum til að reyna að koma í veg fyrir að við missum ungt fólk ótímabært af vinnumarkaði og á örorku.“

Vigdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri VIRK starfsendurhæfingarsjóðs: „VIRK hefur unnið samkvæmt hugmyndafræði IPS í um 11 ár og við vitum að hún skilar árangri. Við eigum nú þegar mjög gott samstarf við fyrirtæki og stofnanir um allt land og við hlökkum til að efla þessa þjónustu okkar í samstarfi við enn fleiri aðila en áður.“

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum