Hoppa yfir valmynd
9. maí 2023 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Framtíðarskipan skólaþjónustu: Samráðsfundur um nýtt lagafrumvarp

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, boðar til opins samráðsfundar um framtíðarskipulag skólaþjónustu á Íslandi mánudaginn 5. júní kl. 10:00–16:00 í Silfurbergi í Hörpu og í streymi. Fundurinn markar þann síðasta í opna samráðsferlinu og er nýtt skipulag skólaþjónustu að taka á sig mynd. Á fundinum verða kynntar niðurstöður þjóðfundar um framtíð skólaþjónustu og þjóðfunda í héraði sem haldnir voru í mars sl. Farið verður yfir mögulegar útfærslur á skólaþjónustu út frá niðurstöðum samráðsins og kosti og galla ólíkra leiða í hópvinnu.

Mennta- og barnamálaráðuneytið óskar eftir þátttöku og endurgjöf sem flestra aðila úr skólakerfinu og annarra áhugasamra til að móta heppilegustu útfærsluna. Um einstakt tækifæri er að ræða til að móta framtíðarskipulag skólaþjónustu á Íslandi. Í kjölfar fundar hefst vinna í ráðuneytinu við að nýta niðurstöður og leggja lokahönd á frumvarp til laga um heildstæða skólaþjónustu á Íslandi sem stefnt er að því að birta í samráðsgátt í haust.

Dagskráin hefst með erindum sem einnig verður streymt á vef Stjórnarráðsins. Að hádegisverði loknum hefst hópvinna bæði í sal og rafrænt fyrir þau sem taka þátt á netinu. Fundurinn verður túlkaður á táknmáli. Þátttaka er fundargestum að kostnaðarlausu og er opið fyrir skráningar til og með 26. maí.

Samráðsferlið hófst í nóvember á opnum kynningarfundi um áform um ný heildarlög um skólaþjónustu með vel á þriðja hundrað þátttakendum. Í vetur tóku m.a. um þrjú hundruð manns þátt í rafrænum samráðsfundum og hafa meira en þúsund börn og ungmenni tekið þátt í ferlinu með fjölbreyttum hætti. Yfir fjögur hundruð manns sóttu þjóðfund um framtíð skólaþjónustu í Hörpu 6. mars sl. Í kjölfarið voru jafnframt haldnir þjóðfundir heima í héraði víða um land. Þátttakan hefur verið vonum framar og þakkar mennta- og barnamálaráðuneytið fyrir framlag allra þeirra sem komið hafa að vinnunni.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum