Hoppa yfir valmynd
23. maí 2023 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Tæplega 2.000 umsækjendur um alþjóðlega vernd í húsnæði á vegum Vinnumálastofnunar

Tæplega 2.000 umsækjendur um alþjóðlega vernd dvelja nú í búsetuúrræðum á vegum Vinnumálastofnunar en stofnunin þjónustar umsækjendur um alþjóðlega vernd hér á landi. Þegar stofnunin tók við þjónustunni frá Útlendingastofnun um mitt síðasta ár voru um 700 umsækjendur búsettir í húsnæði ætluðu umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Aldrei hafa jafnmargir sótt um alþjóðlega vernd á Íslandi en um þessar mundir. Það sem af er ári eru umsækjendur orðnir fleiri en á sama tíma í fyrra eða um 2.000 talsins. Að jafnaði hafa um 100 einstaklingar á viku sótt um alþjóðlega vernd hér á landi frá því í janúar sl.

Tölfræðina má nálgast á vef Stjórnarráðsins en þar sést meðal annars að frá áramótum hafa ríflega tvisvar sinnum fleiri sótt um alþjóðlega vernd á Íslandi en allt árið 2021. Flest fólkið kemur frá Venesúela og Úkraínu en fjöldi ríkisfanga er 49. Börn eru 20% hópsins.

Þau sem sæta ofsóknum í heimalandi sínu eða eiga þar á hættu til að mynda pyndingar eða ómannúðlega meðferð eiga rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi sem flóttafólk. Þau sem koma hingað til lands og óska eftir viðurkenningu á stöðu sinni sem flóttamenn teljast vera umsækjendur um alþjóðlega vernd. Áður var talað um hælisleitendur í þessu samhengi eða um fólk í leit að hæli, það er griðastað.

Flóttafólk sem leitað hefur skjóls á Íslandi frá Úkraínu eftir innrás Rússlands þar í landi hefur fengið dvalarleyfi hérlendis á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Með nýlegum breytingum á lögum um atvinnuréttindi útlendinga má fólk með slíkt dvalarleyfi nú strax hefja störf hér á landi, en fyrir lagabreytinguna þurfti viðkomandi að fá veitt atvinnuleyfi til að geta hafið störf á innlendum vinnumarkaði.

Samræmd móttaka flóttafólks er hugsuð fyrir þau sem fengið hafa alþjóðlega vernd og þurfa stuðning við að ná rótfestu hér á landi. Tólf sveitarfélög hafa undirritað samninga um svokallaða samræmda móttöku flóttafólks.

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum