Hoppa yfir valmynd
30. október 2023 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands - auglýsing nr. 2/2023

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins. Ferðakostnaður innanlands er reiknaður út frá verðkönnun þar sem kannað er vænt verð á algengum gististöðum, á höfuðborgarsvæðinu og utan þess. Almennt er ferðakostnaði innanlands breytt tvisvar sinnum á ári, að vori og að hausti, til þess að endurspegla árstíðarsveiflu í kostnaði gistingar.

  1.  Gisting og fæði í einn sólarhring kr. 38.500
  2.   Gisting í einn sólarhring kr. 22.600
  3.  Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag kr. 15.900
  4.   Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 7.950

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. nóvember 2023. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 1/2023.

Athygli er vakin á að meginreglan er að greiða skal kostnað vegna ferðalaga innanlands, s.s. fargjöld, fæði og gistingu, eftir reikningi. Fæðiskostnaður er uppreiknaður miðað við breytingar á viðeigandi vísitölu sem útgefin er af Hagstofu Íslands.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum