Hoppa yfir valmynd
16. nóvember 2023 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Auglýst eftir umsóknum um styrki úr þróunarsjóði innflytjendamála

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og innflytjendaráð auglýsa eftir umsóknum um styrki úr þróunarsjóði innflytjendamála. Hlutverk sjóðsins er að styðja þróunarverkefni og efla rannsóknir á sviði málefna innflytjenda með það að markmiði að auðvelda gagnkvæma aðlögun innflytjenda og íslensks samfélags.

Við val verkefna sem hljóta styrk úr þróunarsjóði innflytjendamála árið 2023 verður áhersla lögð á verkefni sem efla lýðræðislega þátttöku, vinna gegn fordómum og taka á margþættri mismunun.

Óskað er eftir umsóknum um verkefni sem ná til:

  • Aukinnar lýðræðislegrar þátttöku innflytjenda.
  • Aðgerða gegn fordómum, haturstjáningu og ofbeldi.
  • Aðgerða gegn margþættri mismunun. 

Félags- og hagsmunasamtök innflytjenda eru sérstaklega hvött til þess að sækja um.

Styrkir verða veittir félögum, samtökum og opinberum aðilum. Sú nýbreytni hefur verið gerð að einstaklingar geta nú sótt um styrki til verkefna, en ekki einungis til rannsókna líkt og verið hefur. Styrkir geta að hámarki numið 75% af áætluðum heildarkostnaði verkefnis. Unnt er að sækja um jafnt á íslensku sem og ensku.

Umsóknarfrestur er til og með 15. desember 2023.

Umsókn sem berst eftir að umsóknarfrestur er liðinn verður ekki tekin til umfjöllunar.

Frekari upplýsingar fást í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu í síma 545 8100 og með tölvupósti á netfangið [email protected].

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum