Hoppa yfir valmynd
1. desember 2023 Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið

Óskað eftir leiguhúsnæði fyrir Grindvíkinga

Til að styðja enn frekar við öflun húsnæðis fyrir Grindvíkinga sem rýma hafa þurft heimili sín hefur Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir, að höfðu samráði við Grindavíkurbæ, fjármála- og efnahagsráðuneytið, forsætisráðuneytið og innviðaráðuneytið, auglýst eftir fasteignum tímabundið til leigu fyrir íbúa Grindavíkur. Þessari aðgerð er ætlað að auka við framboð eigna fyrir þennan hóp og er hluti af húsnæðistuðningi ríkisins við Grindvíkinga, sem einnig samanstendur af launastuðningi, leigustyrk (í meðförum þingsins) og áður tilkynntum kaupum ríkisins á fasteignum. Upplýsingum um fasteignirnar verður safnað á island.is/grindavik og Grindvíkingum til skoðunar og eftirfylgni.

Er horft til þess að með þessum samstilltu úrræðum verði hægt að stuðla að því að húsnæðisþörf Grindvíkinga verði leyst eins og fljótt og vel og hægt er.
Í auglýsingu FSRE segir að eignirnar þurfi að vera lausar og tilbúnar til notkunar sem fyrst og til leigu í að minnsta kosti þrjá mánuði.

Óskað er eftir íbúðum og sérbýli á Suðurnesjum, höfuðborgarsvæðinu og nágrannasveitarfélögum. Eignirnar verða auglýstar til leigu á leigutorgi sem eingöngu er ætlað fólki með lögheimili í Grindavík. Samningar um leigu húsnæðis verða gerðir á milli íbúa og eigenda, án aðkomu opinberra aðila.

 


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum