Hoppa yfir valmynd
22. desember 2023 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Aukin tækifæri til samkeppnishæfs náms utan höfuðborgarsvæðisins með sameiningu Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst

Háskólinn á Akureyri og Háskólinn á Bifröst. - mynd

Skýrsla um fýsileika sameiningar Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst liggur nú fyrir. Skýrslan var unnin í framhaldi af viljayfirlýsingu háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og háskólanna tveggja sem undirrituð var í september sl. Við sameiningu skólanna yrði til nýr skóli með höfuðstöðvar á Akureyri, starfsstöð í Borgarnesi og starfsstöð í Reykjavík.

Ráðist var í greiningarvinnu í kjölfar verkefnis háskólaráðherra um Samstarf háskóla sem kynnt var á síðasta ári og hefur þegar skilað meira samstarfi á milli háskóla landsins ásamt samningaviðræðum um mögulegar sameiningar Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst annars vegar og hins vegar samtals milli Háskólans á Hólum og Háskóla Íslands.

Sameinaðir styrkleikar styrkja háskólamenntun á Íslandi

Í skýrslunni er sýn fyrir skipulag nýs háskóla á grunni skólanna tveggja kynnt. Talið er að með því að sameina krafta, styrkleika og sérfræðiþekkingu háskólanna yrði til nýr og samkeppnishæfari skóli jafn hérlendis sem og á alþjóðavettvangi sem myndi styrkja til muna háskólamenntun á Íslandi. Þá myndi sameinaður skóli jafnframt styrkja samkeppnisstöðu Íslands í síbreytilegum heimi.

Kröftugur, sameinaður háskóli með höfuðstöðvar á Akureyri og miðstöðvar eða samstarf um allt land myndi styrkja landsbyggðina í heild og fjölga tækifærum til náms utan höfuðborgarsvæðisins, ekki síst í gegnum aukna möguleika á fjölbreyttu fjarnámi.

Aukin gæði og betri þjónusta

,,Það er ekki annað hægt en að vera bjartsýn þegar blásið er til sóknar eins og gert er í skýrslu um mögulega sameiningu Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst. Ef allt gengur að óskum munum við sjá næst stærsta háskóla landsins verða til sem settur er saman af skólum sem hafa verið leiðandi í fjarnámi og sterkir á landsbyggðinni,” segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Sameinaður háskóli yrði svipaður að stærð og Háskólinn í Reykjavík m.t.t. nemendafjölda, eða um 3500 nemendur. Nýr háskóli gæti orðið til þess að styrkja frekar samstarf sem þessir skólar hafa við háskólasetur og miðstöðvar í öllum landsfjórðungum. Með sameiningu væri blásið til sóknar á landsbyggðinni með auknum gæðum, aukinni þjónustu og auknum rannsóknum.

Virkt samráð við kennara og nemendur

Stýrihópur sem vann skýrsluna var skipaður þremur fulltrúum úr hvorum skóla undir leiðsögn Aðalsteins Leifssonar, fyrrverandi ríkissáttasemjara. Hópurinn átti virk samtöl við starfsfólk, nemendur og aðra velunnara háskólanna við gerð hennar. Fram undan er umræða um skýrsluna í háskólaráðum beggja háskóla og áframhaldandi samtal við starfsfólk, nemendur, sveitarstjórnir, ráðuneyti háskólamála og aðra hagsmunaaðila áður en ákvarðanir verða teknar um möguleg næstu skref í átt til sameiningar.

,,Samtalið og vinnan hefur gengið vel, það er margt jákvætt að finna í niðurstöðum fýsileikagreiningarinnar þó enn séu ýmis álitamál sem þarf að leysa ef samvinnan á milli skólanna á að aukast. Það verður spennandi að takast á við þau álitamál ásamt tækifærunum á nýju ári ef ákveðið verður að halda áfram með þá vinnu sem nú þegar hefur farið fram,” segir Elín Díanna Gunnarsdóttir, starfandi rektor Háskólans á Akureyri.

,,Ánægjulegt er hversu jákvæðum niðurstöðum viðræður Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst skiluðu um fýsileika sameiningar. Ljóst er að á grunni þeirra getur risið annar stærsti háskóli landsins, sem myndar til muna öflugri heild en háskólarnir standa nú samanlagt fyrir, hvor í sínu lagi. Gangi það eftir mun nýi háskólinn efla og byggja enn frekar upp innviði háskólamenntunar hér á landi, sem alþjóðlega samkeppnisfær rannsóknaháskóli. Þá mun hann treysta jafnrétti til háskólamenntunar hér á landi með sambærilegum hætti og gert er í nágrannalöndum okkar, óháð þáttum á borð við aldur, búsetu, atvinnuþátttöku eða fötlun. Það er því að okkar mati verulega mikilvægt að stjórnvöld greiði, sem best þau geta, fyrir sameiningu háskólanna,” segir Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor Háskólans á Bifröst.

,,Það er frábært að fá svona vel unna skýrslu um að tækifæri séu til að ná miklum árangri með sameiningu tveggja öflugra háskóla. Ég hlakka til að sjá hvort þessi stórsókn fyrir Norðurland og landsbyggðina alla verði að veruleika. Nú er boltinn hjá háskólaráðunum og samfélaginu að taka umræðuna áfram,” segir Áslaug Arna.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum