Hoppa yfir valmynd
10. janúar 2024 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Viðræður hefjast um sameiningu Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst

Háskólinn á Akureyri og Háskólinn á Bifröst. - mynd

Í kjölfar fýsileikagreiningar Háskólans á Akureyri (HA) og Háskólans á Bifröst um aukið samstarf og mögulega sameiningu hafa háskólaráð HA og stjórn Háskólans á Bifröst nú ákveðið að ganga til sameiningarviðræðna.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir fagnar niðurstöðu háskólanna sem komi í framhaldi af öflugu samstarfi háskóla. Með sameiningu þessarar tveggja skóla geti orðið til háskóli sem taki afgerandi forystu í fjarnámi og þjónustu við nemendur um land allt sem kalli eftir sveigjanlegum námsaðferðum. „Skólarnir hafa jafnframt hug á að efla rannsóknarhlutverk sitt og ég mun leggja mig fram um að hugmyndir þeirra um öflugan rannsóknarsjóð nýs skóla geti orðið að veruleika.“

Í fýsileikagreiningunni er það niðurstaða skólanna að þeir deili sömu framtíðarsýn og metnaði til að vera háskóli fyrir landið allt og bjóða upp á fjölbreyttar og sveigjanlegar leiðir til náms. Sameining háskólanna segir hún að skapi tækifæri til að efla sérstaklega þær þrjár deildir sem eru í báðum skólum, saman geti stoðdeildir skólanna orðið sterkari og samfélag akademísks starfsfólks og nemenda orðið ríkara. Skólarnir undirstrika að markmiðið sameiningar sé hvorki niðurskurður né fækkun námsbrauta heldur þvert á móti að ætlunin sé að blása til sóknar og styrkja landsbyggðirnar, íslenskt fræðasamfélag og þjóðfélagið í heild sinni.

„Ég hef sagt það áður að einn af veikleikum háskólastigsins hér á landi sé sá að háskólarnir eru of margir miðað við fjölda íbúa. Því setti ég af stað verkefnið Samstarf háskóla þar sem sérstöku fjármagni er úthlutað til verkefna sem unnin eru sameiginlega af tveimur eða fleiri háskólum. Verkefnið hefur skilað miklum árangri og það hefur t.d. leitt af sér nýjar námsleiðir og meira fjarnám. Ég hef vonast til að aukið samstarf skóla leiði til þess að þeir eigi frumkvæði að þeim sameiningum sem mest styrkja háskólastigið og að mínu mati er hugsanleg sameining Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst mikilvægur áfangi á þeirri leið. Fýsileikagreining þeirra var afar vel unnin og öllum sem að henni komu til sóma.“

Framundan eru formlegri viðræður skólanna og samtal við ráðuneytið þar sem m.a. verður greint hvort og þá hvaða lagabreytingar þarf að gera ef af sameiningu á að verða auk þess sem greint verður betur hvaða horfur eru í fjármögnun skólanna til lengri tíma. Stefnt er að því að sameinaður skóli geti formlega tekið til starfa haustið 2025 en fram að þeim tíma verði möguleg sameining undirbúin í samræmi við gæðakröfur þeirra.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum