25. september 2026 /
Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherra ávarpar allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna

{image.Description}
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra flytur ávarp Íslands í leiðtogaumræðu áttugasta og fyrsta allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í New York síðdegis á morgun, laugardag. Þorgerður Katrín hefur í vikunni tekið þátt í fjölmörgum fundum og viðburðum í tengslum við ráðherraviku allsherjarþingsins en jafnan er mikið um að vera þegar þingið er sett ár hvert.

„Á þeim umrótatímum sem við nú lifum er gríðarlega mikilvægt fyrir Ísland að taka virkan þátt í samstarfi þjóða og  við gætum hagsmuna okkar Íslendinga með þeim hætti,“ segir Þorgerður Katrín. „Ég hef tekið þátt í viðburðum í vikunni sem snerta sumar af erfiðustu áskorunum samtímans og átt fjöldamörg tvíhliða samtöl, ekki aðeins á formlegum fundum heldur á göngunum einnig. Það gefst hvergi betra færi á þessháttar samtali, sem við þurfum að vera hluti af, og í leiðtogaviku allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna eins og hefur sannast sem aldrei fyrr.“

Utanríkisráðherra og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra voru viðstaddar opnun ráðherravikunnar á þriðjudag líkt og greint hefur verið frá. Forsætisráðherra sat einnig sérstakan leiðtogafund um tveggja ríkja lausnina svonefndu milli Ísraels og Palestínu sem forystumenn Bretlands, Frakklands, Kanada og Sádí Arabíu boðuðu til og Þorgerður Katrín flutti síðan ávarp á utanríkisráðherrafundi ríkjabandalags um sömu mál í gær, fimmtudag. Þorgerður Katrín sótti enn fremur ráðherrafund stuðningsríkja Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA).

Málefni Úkraínu settu einnig mark sitt á dagskrá utanríkisráðherra í vikunni en Þorgerður Katrín sótti m.a. sérstakan viðburð um Krím-skaga, sem tilheyrir Úkraínu en Rússland hertók 2014, og var Volodómír Selenskí, forseti Úkraínu þar aðalræðumaður. Hún fylgdist jafnframt með umræðum um málefni Úkraínu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna og tók þátt í fjölmiðlaviðburði sem evrópskir utanríkisráðherrar, auk Kaja Kallas, utanríkismálastjóra Evrópusambandsins, stóðu fyrir til að sýna skýran stuðning við Úkraínu.

Þá stýrði utanríkisráðherra umræðum á sérstökum fundi kvenleiðtoga á vettvangi Sameinuðu þjóðanna í gær. Hún flutti einnig ávarp á ráðherrafundi um mikilvægi þess að standa vörð um hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna og annað ávarp á viðburði um hættuna sem stafar af hækkun yfirborðs sjávar sem er gríðarlega mikilvægt hagsmunamál fyrir Ísland.

Þorgerður Katrín sat einnig fund utanríkisráðherra NB8-ríkjanna svokölluðu (Norðurlandanna fimm og Eystrasaltsríkjanna þriggja) með Anitu Anand, utanríkisráðherra Kanada. Þá sótti hún óformlegan ráðherrafund um málefni Alþjóðasakamáladómstólsins, sem Austurríki og Liechtenstein stóðu að, sem og óformlegan kvöldverð kvennutanríkisráðherra. Enn fremur átti utanríkisráðherra tvíhliða fundi með utanríkisráðherrum Singapore og Nepal sem og Bárði á Steig Nielsen, utanríkisráðherra Færeyja. Þorgerður Katrín fundaði með Pekka Haavisto, sérlegum sendifulltrúa framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna í málefnum Súdans og í dag sækir hún fund leiðtoga smærri Evrópuríkja og á fund með Rosemary DiCarlo, aðstoðarframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, sem stýrir pólitískri skrifstofu stofnunarinnar. Skrifar utanríkisráðherra við það tækifæri undir samkomulag um stuðning Íslands við starf Sameinuðu þjóðanna í þágu friðar og friðarumleitana í heiminum (DPPA).

Nokkur góð tækifæri gáfust í vikunni til viðræðna við bandaríska ráðamenn en Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sótti þannig á þriðjudag móttöku sem Donald Trump Bandaríkjaforseti hélt fyrir þjóðarleiðtoga.

Þorgerður Katrín hitti Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á fundi sjö norðurslóðaríkja, þ.e. Bandaríkjanna og Kanada, auk Norðurlandanna fimm,og saman ræddu þær Kristrún og Þorgerður Katrín síðan við Christopher Landau, varautanríkisráðherra Bandaríkjanna, þegar hann kom við í fastanefnd Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum. Að síðustu hitti Þorgerður Katrín Allison M. Hooker, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, að beiðni þeirrar síðarnefndu.

Sem fyrr segir flytur utanríkisráðherra árlegt ávarp Íslands í leiðtogaumræðum allsherjarþingsins eftir hádegi á laugardag og verður hægt að fylgjast með flutningnum beint á vefsíðu Sameinuðu þjóðanna.