29. september 2026 /
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Education at a Glance 2026: Háskólar á Íslandi

Árleg skýrsla Efnahags og framfarastofnunarinnar, OECD, Education at a Glance 2026, sem birt var fyrr í dag setur stöðu íslensks menntakerfis í alþjóðlegt samhengi. Að þessu sinni beina skýrsluhöfundar sjónum sínum að menntakerfinu í heild sinni. Sjá frétt barna- og menntamálaráðuneytisins.

Hvað varðar málefni háskóla kemur fram í skýrslunni að alþjóðlegur hreyfanleiki íslenskra háskólanema er mjög mikill, en Ísland verður jafnframt í vaxandi mæli áfangastaður erlendra námsmanna. Helstu áskoranir Íslands á háskólastigi snúi því að auknu álagi á háskólakerfið vegna fjölgunar erlendra nemenda en upptaka skólagjalda fyrir nemendur með ríkisfang utan EES-svæðisins kann að hafa áhrif á fjölda umsókna.

Íslenskt háskólastig í alþjóðlegum samanburði

  • 44% fólks á vinnualdri hafa lokið háskólamenntun, sem er nálægt 43% meðaltali OECD.
  • Góð staða ungs fólks: Aðeins 5% 18–24 ára eru hvorki í námi, starfi né starfsþjálfun, sem er mun lægra en OECD-meðaltalið.
  • 12% íslenskra námsmanna stunda nám erlendis, samanborið við 6% að meðaltali innan OECD.
  • Alþjóðlegir nemendur eru 11% háskólanema á Íslandi, samanborið við 12% að meðaltali innan OECD. Á árunum 2015–2024 jókst hlutfall erlendra námsmanna sem komu til Íslands um 3 prósentustig, en hlutfall íslenskra námsmanna sem stunduðu nám erlendis lækkaði um eitt prósentustig. Þetta aukna ójafnvægi kallar á aðgerðir til að efla alþjóðastarf íslenskra háskóla og alþjóðatækifæri nemenda við íslenska háskóla.
  • Helstu áfangastaðir íslenskra námsmanna erlendis eru:  
    - Danmörk: 33% 
    - Bandaríkin: 13% 
    - Svíþjóð: 9%
  • Ísland ver áfram hlutfallslega miklum fjármunum til menntunar og rannsókna í samanburði við OECD-ríkin en þar inni reiknast öll framlög til rannsókna og þróunar, þar með talið endurgreiðslur skatta til nýsköpunarfyrirtækja vegna rannsókna og þróunar.

Opinber útgjöld á hvern nemanda í námi til BS/BA-gráðu og á æðri stigum eru að meðaltali í OECD: 16.405 USD,  en á Íslandi  21.107 USD (íslenska samtalan felur í sér endurgreiðslu skatta til nýsköpunarfyrirtækja vegna rannsókna og þróunar.)

 

Háskólamál og atvinnustefna

Í atvinnustefnu stjórnvalda er að finna eftirfarandi tillögur að aðgerðum sem snúa að fjölgun brautskráðra nemenda með STEM-menntun á háskólastigi:

  • Fjölga fagmenntuðum kennurum í STEM-greinum á öllum skólastigum í samstarfi við skólasamfélagið og sveitarfélög. Áhersla verður lögð á aukna færni í STEM-greinum í kennaranámi og endurmenntun kennara, auk þess sem boðið verður upp á sveigjanlegar námsleiðir fyrir kennara sem vilja efla færni sína í umræddum greinum.  Áhersla verður lögð á að skapa hvata fyrir fólk með STEM-menntun á háskólastigi til að bæta við sig kennsluréttindum í viðkomandi greinum.
  • Stuðningur aukinn við nýnema í STEM-greinum á háskólastigi, með undirbúningsnámskeiðum og sveigjanlegum námsleiðum. Unnið verður að því að styrkja grunnþekkingu, minnka líkur á brottfalli og auka samfellu á milli háskóla og framhaldsskóla, einkum á sviði STEM-greina.
  • Aukið samstarf – þróaðar verða leiðir í samstarfi við háskólana til að styrkja samstarf háskóla og atvinnulífs í STEM-greinum.

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið hefur áfram til meðferðar greiningu og tillögur OECD  í skýrslu síðasta árs þar sem háskólamál voru tekin fyrir. Í ráðuneytinu er jafnframt unnið að fyrstu háskólastefnunni fyrir Ísland sem tekur fyrir helstu áskoranir í málefnum háskóla og setur stefnuna til næstu 10 ára í takt við atvinnustefnu Íslands og stefnu Íslands um vísindi og nýsköpun sem birt var í fyrra.