Tvö fyrirtæki fá styrk úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífs
Í síðustu viku voru undirritaðir samningar við tvo styrkþega Heimsmarkmiðasjóðs atvinnulífsins vegna samstarfsverkefna í þróunarríkjum. Markmið Heimsmarkmiðasjóðs er að hvetja til þátttöku og framlags atvinnulífsins til þróunarsamvinnu og er þetta í fjórtánda sinn sem styrkjum er úthlutað úr sjóðnum. Fyrirtækin sem um ræðir eru CRI hf. og Verkís hf. og leggja þau bæði til mótframlag sem nemur a.m.k. helmingi heildarkostnaðar verkefnis.
CRI hf. hlýtur 10.000.000 kr. styrk til verkefnisins „Frá losun til lausnar: Íslensk þekking og hreint eldsneyti í Norður- og Norðaustur Brasilíu“. Því er ætlað að skapa raunhæfar forsendur fyrir þróun og síðar uppbyggingu verksmiðja til framleiðslu græns metanóls í Norður- og Norðaustur-Brasilíu þar sem framleitt verður grænt metanól úr koltvísýringi frá iðnaði eða lífmassaúrgangi og endurnýjanlegri orku. Framleiðslan, rafmetanól eða lífmetanól, verður nýtt sem grænt eldsneyti sem getur komið í stað jarðefnaeldsneytis í samgöngum og iðnaði. Verkefni sem þetta getur til lengri tíma stuðlað að uppbyggingu nýrrar og sérhæfðrar atvinnustarfsemi, þróun nýrra virðiskeðja og auknum loftslagsávinningi á svæði sem stendur verr að vígi hvað varðar tekjur, iðnaðaruppbyggingu og aðgengi að sérhæfðri þekkingu og fjárfestingu en þróaðri iðnaðarsvæði landsins.
Verkís hf. fær 4.415.975 kr. styrk til verkefnisins „Feasibility Study of a Climate-Resilient Agriculture Demonstration Project in India“. Verkefnið felur í sér hagkvæmniathugun á uppbyggingu tilrauna- og fræðslumiðstöðvar fyrir loftslagsþolna gróðurhúsaræktun í Noida, við Nýju-Delí á Indlandi. Hönnun gróðurhúsanna og orkukerfa þeirra mun byggja á þekkingu á nýtingu jarðhita, en í Noida verða lausnirnar aðlagaðar að notkun varmadæla og sólarorku. Markmiðið er að gera landbúnaðarframleiðslu mögulega allt árið um kring þrátt fyrir breytileg loftslagsskilyrði. Miðstöðin á jafnframt að verða fyrirmynd að sambærilegri uppbyggingu á jarðhitasvæðum á Indlandi, þar sem jarðhiti getur komið í stað varmadælukerfa.
Lesa má nánar um Heimsmarkmiðasjóð atvinnulífsins á vef sjóðsins.