5. október 2026 /
Innviðaráðuneytið

Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 7. október – dagskrá

{image.Description}
Haraldur Jónasson / Hari

 

Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verður haldinn miðvikudaginn 7. október nk. á Hilton Reykjavík. Á fundinum verður fjallað um störf sjóðsins og ársskýrslu síðasta árs, 2025. Fundarstjóri er Guðmundur Baldvin Guðmundsson, formaður ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.

Dagskrá fundarins:

  • Setning
    Guðmundur Baldvin Guðmundsson, formaður ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
  • Ávarp ráðherra
    Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra
  • Ársskýrsla Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
    Guðni Geir Einarsson, sérfræðingur hjá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga
  • Nýtt líkan Jöfnunarsjóðs – úttekt Intellecon
    Dr. Gunnar Haraldsson, hagfræðingur og stofnandi Intellecon

Til fundarins eru boðaðir framkvæmdastjórar sveitarfélaga eða staðgenglar þeirra, fulltrúar samtaka sveitarfélaga og aðrir samstarfsaðilar Jöfnunarsjóðs. Fundurinn verður í sal H-I á 2. hæð og hefst kl. 16. Áætlað er að fundinum ljúki um kl. 17:30.