8. október 2026 /
Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Stefna um opinbera þjónustu gefin út í fyrsta sinn

{image.Description}
Hari

Ríki og sveitarfélög gáfu í dag út sameiginlega stefnu um opinbera þjónustu. Þetta er í fyrsta sinn sem heildstæð stefna um opinbera þjónustu er sett hér á landi. Markmið hennar er að samræma þjónustu hins opinbera og gera hana betri, aðgengilegri og hagkvæmari.

Stefnan tekur mið af því að þarfir fólks eru ólíkar og að samfélagið stendur frammi fyrir hröðum breytingum, meðal annars vegna breyttrar aldurssamsetningar, aukins fjölbreytileika og örrar tækniþróunar. Viðhorf til opinberrar þjónustu hefur verið mælt undanfarin ár og hefur ánægja með þjónustuna mælst mikil. Með stefnunni er haldið áfram að bæta þjónustuna.

Stefnan eigi að styðja við traust, verðmætasköpun og bætt lífskjör

Framtíðarsýn stefnunnar er að á Íslandi sé veitt framúrskarandi opinber þjónusta. Þjónustan verði öllum aðgengileg á notendavænan og skilvirkan hátt, auk þess að vera samræmd, gagnsæ og hagkvæm. Þannig styðji hún við traust, verðmætasköpun og bætt lífskjör.

Stefnan byggist á þremur markmiðum og undir hverju markmiði eru nokkrar áherslur:

Áhersla er meðal annars lögð á notendamiðaða og samþætta þjónustu í gegnum Ísland.is, bætta þjónustu í persónu, aukna hagnýtingu gagna og tækni, einföldun regluverks, nýsköpun og aukna samvinnu milli ríkis og sveitarfélaga. Markmiðið er að almenningur og atvinnulíf upplifi opinbera þjónustu sem eina heild, óháð því hvaða stofnun eða stjórnsýslustig veitir hana.

Yfir 100 aðgerðir þvert á hið opinbera í aðgerðaáætlun

Aðgerðaáætlun til þriggja ára er birt samhliða stefnunni sem verður í stöðugri uppfærslu þar sem ný verkefni bætast við eftir þörfum. Yfir 100 aðgerðir hafa verið mótaðar í samstarfi við ráðuneyti og sveitarfélög og eru meðal annars sprottnar úr því víðtæka samráði sem fór fram í tengslum við verkefnið Verum hagsýn í rekstri ríkisins. Með aðgerðaáætluninni er skýrt hvernig markmiðum stefnunnar verður fylgt eftir og hverjir bera ábyrgð á framkvæmd einstakra verkefna.

Notast er við fyrirliggjandi mælikvarða til að fylgjast með árangri stefnunnar. Þar ber fyrst að nefna könnun á þjónustu ríkisstofnana. Einnig er fylgst með þróun á niðurstöðu traustkönnunar OECD auk alþjóðlegra mælikvarða um framgang stafrænnar þjónustu.