Skýrsla starfshóps um málefni gervigreindar
Starfshópur um nálgun stjórnvalda í málefnum gervigreindar sem var skipaður í júlí síðastliðnum að tillögu forsætisráðherra og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra hefur skilað skýrslu sinni. Hlutverk hans var að leggja heildstætt mat á stefnu og aðgerðir stjórnvalda í málefnum gervigreindar og gera tillögur um forgangsröðun og úrbætur.
Í starfshópnum sátu Hjálmar Gíslason, framkvæmdastjóri GRID og formaður hópsins, Anna Kristín Tumadóttir, framkvæmdastjóri Creative Commons, Ari Kristinn Jónsson, framkvæmdastjóri nýsköpunarsjóðs Atlantshafsbandalagsins, Halldór Fannar Guðjónsson, tæknistjóri hjá NVIDIA, og Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms.
Skýrsla starfshópsins Gervigreind til góðs – Ísland sem fyrirmynd í nýtingu gervigreindar til góðs fyrir samfélagið allt var kynnt fyrir forsætisráðherra, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra síðastliðinn þriðjudag og rædd á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Í skýrslunni eru lagðar fram fjöldi tillaga sem miða að því að efla ábyrga og markvissa nýtingu gervigreindar á Íslandi.
Þrjú forgangsverkefni
Ein af meginniðurstöðum starfshópsins er að Ísland þurfi ekki að vera leiðandi í þróun gervigreindar til að verða meðal þeirra bestu í hagnýtingu hennar.
Í skýrslunni eru skilgreindar þrjár megináherslur sem eiga að leggja grunn að árangursríkri nýtingu gervigreindar:
- Færni okkar allra: markviss fræðsla um kosti og áskoranir gervigreindar. Landsrammi verður settur um gervigreind í skólum og að áhrif gervigreindar á vinnumarkað verði mæld.
- Gervigreind á íslensku, á okkar forsendum: virkja íslensk mál- og menningargögn í samstarfi við rétthafa. Búin verði til þjálfunaruppskrift og mælipróf sem styðja við þróun íslenskra mállíkana.
- Markviss innleiðing hjá hinu opinbera: sameina rekstur upplýsingatækni ríkisins í eina einingu. Lögð er áhersla á gagnamál hins opinbera til að styðja við frekari innleiðingu gervigreindar hjá stofnunum og ráðuneytum.
Tillögur á tíu málefnasviðum
Alls leggur starfshópurinn fram 69 tillögur á tíu málefnasviðum. Auk stofnanafyrirkomulags og samfélagslegra áhrifa gervigreindar fjallar skýrslan sérstaklega um átta viðfangsefni: menntun og færni; gögn; íslensku, máltækni og íslensk mállíkön; hugverkarétt; reikniafl, gagnaver og orku; gervigreindarfullveldi; nýtingu í opinbera geiranum; og regluverk og lagalega umgjörð.
Ég er afar ánægð með að fá þennan hóp sérfræðinga til að rýna stefnu og nálgun stjórnvalda í málefnum gervigreindar. Tillögurnar eru vel ígrundaðar og gefa okkur tækifæri til að taka mikilvæg skref í rétta átt þegar kemur að nýtingu gervigreindar hjá hinu opinbera. Þá er ekki síður nauðsynlegt að við nýtum þessa vinnu til að búa til umgjörð sem stendur vörð um gildi okkar, t.d. hvað varðar menntun barnanna okkar, vinnumarkað, íslenska tungu og hugverkarétt.
Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra
Tillögur hópsins eru mikilvægt innlegg í vinnu næstu missera. Ísland hefur forsendur til að nýta gervigreind með framúrskarandi hætti, en árangurinn ræðst af því hvernig samfélagið undirbýr sig og stjórnvöld fylgja aðgerðum eftir - og það munum við gera.
Ein af tillögum starfshópsins felur því í sér stofnun stýrihóps ráðuneyta um málefni gervigreindar, til að samræma aðgerðir og undirstrika mikilvægi málaflokksins. Ríkistjórnin samþykkti það í morgun svo að ein tillaga er þegar komin í umferð og mun nýtast vel við undirbúning næstu aðgerða.
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
Næstu skref
Forsætisráðuneytið og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið munu nú fara yfir tillögurnar og koma aðgerðum í farveg. Þar sem þær ná þvert á málefnasvið stjórnarráðsins kallar vinnan á virkt samráð allra ráðuneyta.
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið vinnur jafnframt að uppfærðri útgáfu af aðgerðaáætlun um gervigreind og máltækni, sem stefnt er að því að gefa út í lok árs. Tillögur starfshópsins verða teknar til meðferðar við uppfærsluna.