Gervigreind til góðs: Mat og tillögur starfshóps
Starfshópur um nálgun stjórnvalda í málefnum gervigreindar hefur skilað mati sínu og tillögum. Hér er kjarninn í niðurstöðum hópsins: leiðarljósið, meginreglurnar sex og útkomurnar þrjár. Rökstuðning og tillögur hópsins í heild er að finna í skýrslunni sjálfri, bæði sem PDF og í vefútgáfu.
Leiðarljós
Íslenskt samfélag getur orðið fyrirmynd í nýtingu gervigreindar til góðs, í senn metnaðarfullt í markmiðum og ábyrgt í aðgerðum. Gervigreind á að bæta lífsgæði, þjónustu og framleiðni - á íslensku og okkar eigin forsendum - þannig að ávinningurinn nái til allra.
Meginreglur
Geta samfélagsins er lykillinn
Ísland ræður ekki tækniþróuninni, en færni okkar, viðbúnaður, traust og aðstaða til hagnýtingar ráða því hvort hún verður okkur til góðs.
Fjallganga, ekki tunglskot
Tökum hæfilega stór og mælanleg skref með reglulegum vörðum, en förum á toppinn!
Vissa, ekki veðmál
Veljum aðgerðir sem standast ólíkar sviðsmyndir í tækniþróun, samfélagslegum áhrifum og hraða breytinga. Vöktum þróunina og höfum viðbúnað þar sem óvissan er mest.
Tækifærin í forgrunn
Sækjum ávinninginn sem gervigreind getur skilað í lífsgæðum, þjónustu og framleiðni.
Byrgjum brunninn, þar sem þarf
Mætum hættum og áskorunum af festu þegar þær raungerast. Setjum ekki boð og bönn á tiltekna tækni, heldur á beitingu hennar.
Öll með
Tryggjum aðgengi og tækifæri óháð búsetu og efnahag. Samtal samfélagsins er hluti innviðanna.
Þrjár útkomur
Starfshópurinn leggur áherslu á eftirfarandi útkomur í málefnum gervigreindar og leiðir að þeim:
1. Færni okkar allra
1. Fræðum fólk markvisst um kosti og áskoranir gervigreindar og þjálfum það í nýtingu hennar á vinnutíma - kennara og stjórnendur fyrst
2. Setjum landsramma um gervigreind í skólum og styðjum kennara með miðlægu teymi sem vinnur með þeim
3. Mælum áhrif gervigreindar á vinnumarkaðinn, vinnum sviðsmyndir og bregðumst við þegar merki koma fram
2. Gervigreind á íslensku, á okkar forsendum
1. Leysum mál- og menningargögn úr læðingi í samstarfi við rétthafa
2. Búum til opna þjálfunaruppskrift og mælipróf sem nýtast á hvaða grunnlíkan sem er
3. Rekum útskiptanlegt líkan undir íslenskri stjórn fyrir hið opinbera
3. Markviss innleiðing hjá hinu opinbera
1. Sameinum grunnkerfi og rekstur upplýsingatækni ríkisins í eina einingu með skýra ábyrgð og heimildir
2. Komum skýrum leiðbeiningum til allra opinberra starfsmanna
3. Setjum á fót innleiðingarhóp og hefjum tvö undanfaraverkefni, eitt þverlægt og eitt hjá stofnun
4. Komum gögnum hins opinbera í lag, samræmum þau og höfum aðgangsmálin á hreinu
Skýrslan öll
Starfshópurinn
Starfshópur um nálgun stjórnvalda í málefnum gervigreindar var skipaður 1. júlí 2026 að tillögu forsætisráðherra og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
Í honum sátu Hjálmar Gíslason formaður, Anna Kristín Tumadóttir, Ari Kristinn Jónsson, Halldór Fannar Guðjónsson og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Hlutverk starfshópsins var m.a. að meta nálgun stjórnvalda í málaflokknum heildstætt í ljósi hraðrar þróunar gervigreindar og gera tillögur um forgangsröðun og úrbætur.