Niðurstöður sveitarfélaga og skóla í PISA veittar
Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur tekið ákvörðun um að upplýsa þau sveitarfélög og grunnskóla sem eftir því leita um sínar niðurstöður í PISA 2025.
Þau sveitarfélög sem þegar hafa óskað eftir sínum niðurstöðum munu fá þær afhentar að lokinni frekari gagnagreiningu ráðuneytisins úr hrágögnum OECD.
Nánari upplýsingar um áreiðanleika niðurstaðna er að finna í undirkaflanum Um greiningu niður á sveitarfélög og skóla neðst í frétt ráðuneytisins um niðurstöður PISA í stærstu sveitarfélög landsins.
Upplýsingagjöfin fellur vel að áherslu ráðuneytisins undanfarin misseri að fá fram heildstæða yfirsýn yfir stöðu íslenskra barna í námi. Nýju stöðu- og framvindupróf Matsferils í lesskilningi og stærðfræði voru lögð fram í vor og verða niðurstöður birtar opinberlega eftir skólum næsta vor ásamt niðurstöðum í lesfimi samkvæmt reglugerð mennta- og barnamálaráðherra. Með þeim verður hægt að bera saman niðurstöður milli skóla og jafnframt fylgjast með þróun milli ára. Í febrúar tilkynnti ráðuneytið um þátttöku í TIMSS – alþjóðlegri rannsókn sem metur árangur nemenda í stærðfræði og náttúrufræði á heimsvísu sem mun fjölga mælikvörðum á stöðu íslenskra nemenda í alþjóðlegum samanburði. Þá birti ráðuneytið í sumar dreifingu lokaeinkunna í grunnskólum landsins. Með heildstæðri yfirsýn geta menntayfirvöld beint aðgerðum þar sem þörfin er mest og stuðlað að bættum námsárangri og framtíðartækifærum barna.