Sameiginleg málefni rædd á fundi samstarfsráðs ríkis og sveitarfélaga
Samstarfsráð ríkis og sveitarfélaga kom saman til fundar í gær og ræddi sameiginleg málefni varðandi stöðu og verkefni sveitarfélaga. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra og ráðherra sveitarstjórnarmála boðaði til fundarins. Auk innviðaráðherra sitja í ráðinu fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Á fundinum sátu einnig fulltrúar frá ráðuneytunum tveimur og Sambandinu.
Áhersla fundarins var á leiðir til að bæta samskipti og samráð milli stjórnsýslustiganna og var samþykkt að þau hefji sameiginlega vinnu við að greina stöðuna, leggja fram tillögur til úrbóta og endurskoða samstarfssáttmála ríkis og sveitarfélaga. Er það í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá desember 2024.
Innviðaráðherra fór á fundinum yfir áherslur og aðgerðir ríkisstjórnarinnar. Ráðherra sagði að stór skref hefðu verið stigin til að efla sveitarstjórnarstigið. Heildarlög um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga hefðu tekið gildi sem marki tímamót og fæli í sér miklar framfarir. Hann fjallaði um frumvarp sitt til nýrra sveitarstjórnarlaga en markmið með nýjum lögum væri að efla sveitarstjórnarstigið til að það verði betur í stakk búið til að sinna lögbundnum verkefnum og þjónustu við íbúa.
Ráðherra minntist einnig á tvö þingmál sem væru í undirbúningi en bæði myndu styrkja fjárhagslegan grundvöll sveitarfélaga. Annars vegar frumvarp um afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati og þar með fasteignaskatti en stefnt væri að framsögu á Alþingi eftir áramót. Það hafi lengi verið hagsmuna- og réttlætismál orkusveitarfélaga. Það væri einnig hagsmunamál fyrir önnur sveitarfélög, þar sem hærri tekjur til sumra sveitarfélaga gagnast flestum í gegnum hærri framlög frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Hins vegar frumvarp um breytingar á hafnalögum sem fyrirhugað væri að mæla fyrir á Alþingi í febrúar. Markmið þess væri að skýra gjaldtökuheimildir hafnarlaga, hvort tveggja til að tryggja að hafnir geti tekið gjald fyrir þá þjónustu sem þær veita og stuðla að gegnsæi í gjaldtöku þeirra.
Á fundinum fór einnig fram sérstök umræða um lánakjör sveitarfélaga og leiðir til að viðhalda og auka fjárfestingagetu sveitarfélaga í innviðum.
Fundir samstarfsráðs eru haldnir árlega að lágmarki en þess á milli starfar samstarfsnefnd (oft kölluð Jónsmessunefnd) í umboði samstarfsráðs ríkis og sveitarfélaga. Samstarfsnefndin hittist mánaðarlega og hefur yfirumsjón með samstarfi ríkis og sveitarfélaga.