13. nóvember 2026 /
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Dagur íslenskrar tungu: Verðlaunaafhending í Eddu og ákall til Apple

{image.Description}

Dagur íslenskrar tungu verður haldinn hátíðlegur mánudaginn næstkomandi í Eddu kl. 15:00, þegar menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra veitir verðlaun Jónasar Hallgrímssonar í 31. skipti. Við sama tilefni er veitt sérstök viðurkenning íslenskrar tungu. Viðurkenninguna skal veita hópi, félagi, verkefni, samtökum, fyrirtækjum eða stofnunum sem hafa sýnt íslenskri tungu ræktarsemi, vakið athygli á henni eða sýnt henni stuðning í verki.

Meðal fyrri verðlaunahafa eru Dröfn Vilhjálmsdóttir, bókasafns- og upplýsingafræðingur sem hlaut verðlaunin á síðasta ári, Ari Eldjárn uppistandari og frú Vigdís Finnbogadóttir.

Máltækni er mannréttindamál

Markmið dags íslenskrar tungu er að minna á mikilvægi íslenskrar tungu og gleðjast og fagna sögu hennar, samtíð og framtíð. Það er því viðeigandi að við tilefnið verður einnig hrint af stað ákalli til tæknirisans Apple þar sem ráðherra óskar eftir stuðningi landsmanna við að þrýsta á Apple til að innleiða íslensku í stýrikerfi sitt. Framtíð íslenskrar tungu krefst þess að hún verði aðgengileg í nýjustu tækni og framtíð þeirra sem eiga við aðgengi hindranir að stríða er samofin því að sú tækni sé aðgengileg á móðurmálinu.   

Dagurinn er haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvember ár hvert. Víða er efnt til margvíslegra menningarviðburða í tilefni dagsins.

Viku íslenskunnar 2026

16.–22. nóvember (ásamt tengdum opnunarviðburðum 13.–15. nóvember)

DagsetningTímiViðburðurStaður / Skipuleggjandi
  1. nóvember
10:00–11:15Skiptir íslenska máli? Málþing um aðgengi heilbrigðisstarfsfólks að kennslu í íslenskuHáskóli Íslands, Edda
  1. nóvember
16:00–17:00Hvað er í öskjunum? Fornbréf í safni Árna Magnússonar.Árnastofnun, Edda
  1. nóvember
09:00–15:30Hvernig getum við nýtt tungumálagögn til að efla íslensku í stafrænum heimi?Vigdísarstofnun, Veröld
  1. nóvember
14:00–17:30Málþing í tilefni af opnun gagnagrunns um fornbréf í safni Árna MagnússonarÁrnastofnun, Edda
  1. nóvember
15:00Upplestur meistaranema í ritlistGljúfrasteinn
  1. nóvember
Allan daginnNiðurstöður úr lestrarkönnun birtarÁ vef Miðstöðvar íslenskra bókmennta
  1. nóvember
12:00Hér má skýr orð skilja: Íslenskan og sjálfsmyndinÞjóðminjasafn Íslands
  1. nóvember
12:00Norðlenskt, nýtt og svolítið blótaðHáskólinn á Akureyri
  1. nóvember
12:00–13:00Málþing í tilefni af 10 ára afmæli Málið.isÁrnastofnun, Edda
  1. nóvember
15:00Afhending Verðlauna Jónasar Hallgrímssonar og viðurkenningar íslenskrar tunguBókasafnið í Eddu
  1. nóvember
Allan daginnFrítt á sýninguna í EdduEdda
  1. nóvember
15:45/16:00Apple – ýttu á takkann. Kynning ráðherraEdda
  1. nóvember
Allan daginnÍslensk útgáfuskrá – ný útgáfaLandsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
  1. nóvember
19:45Sjónvarpsþátturinn MálæðiRÚV
  1. nóvember
18:00Jónasarljóð í JónasarlaugHörgársveit
  1. nóvember
13:00GrettluþingÁrnastofnun
20.–22. nóvemberSamkvæmt sýningartímaOrmstunga í Viku íslenskunnarÞjóðleikhúsið
Var efnið hjálplegt?