Leiðtogafundur ESB, framtíðarsýn um sjávarútveg og fiskeldi, varnartengd nýsköpun, nútímavæðing staðlastarfs, næsti langtímafjárhagsrammi o.fl.
Leiðtogafundur ESB
Leiðtogar aðildarríkja ESB komu saman til leiðtogafundar í Brussel dagana 15.–16. október sl., þar sem samkeppnishæfni og þróun innri markaðarins, orku- og loftslagsmál og næsti langtímafjárhagsrammi sambandsins voru meðal helstu umræðuefna. Einnig var rætt um stöðu mála í Úkraínu, öryggis- og varnarmál, innflytjendamál, stækkun sambandsins og málefni norðurslóða.
Í niðurstöðu fundarins lögðu leiðtogarnir áherslu á að hraða vinnu við lykilmál á grundvelli vegvísisins One Europe, One Market, þar á meðal fyrirhugað 28. reglukerfi í félagarétti, iðnaðarhraðal ESB, nýtt regluverk um raforkunet sem og einföldun stafræns- og umhverfistengds regluverks. Þeir hvöttu jafnframt framkvæmdastjórn ESB til að leggja fram frekari tillögur til að draga úr stjórnsýslubyrði innan sambandsins, einkum fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.
Orkuverð og samkeppnisstaða evrópsks iðnaðar voru til umfjöllunar á fundinum. Leiðtogarnir hvöttu framkvæmdastjórnina til að grípa til aðgerða vegna hás orkuverðs og lögðu áherslu á hraðari orkuskipti. Skiptar skoðanir voru þó um breytingar á viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (e. Emissions Trading System – ETS). Tékkland og Ítalía voru meðal ríkja sem kölluðu eftir lægri kolefniskostnaði fyrir iðnað, en Danmörk, Finnland og Svíþjóð lögðu áherslu á að varðveita hvata kerfisins til fjárfestinga í hreinni tækni. Þá náðist ekki samstaða um að fresta innleiðingu nýs viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir (e. Emissions Trading System 2 – ETS2), sem nær meðal annars til losunar vegna eldsneytisnotkunar í vegasamgöngum og við húshitun, til ársins 2030, eins og nokkur ríki höfðu lagt til.
Í niðurstöðum fundarins var óskað eftir uppfærðu mati framkvæmdastjórnarinnar á heildaráhrifum innleiðingar ETS2 og jafnframt lögð áhersla á aukið gagnsæi og stöðugleika á markaði með losunarheimildir.
Leiðtogarnir ræddu einnig næsta langtímafjárhagsramma ESB fyrir árin 2028–2034 á grundvelli málamiðlunartillögu sem Írland, sem fer með formennsku í ráðherraráði ESB, lagði fram 10. október. Ekki náðist samkomulag um langtímafjárhagsrammann og eru skiptar skoðanir meðal aðildarríkjanna um heildarumfang útgjalda ESB, skiptingu fjármuna milli málaflokka og tekjuöflun sambandsins. Niðurstaða viðræðnanna mun meðal annars ráða umfangi og fjármögnun samstarfsáætlana ESB sem Ísland tekur þátt í eða kann að taka þátt í innan næsta langtímafjárhagsramma sambandsins.
Sjá fyrri umfjöllun í Vaktinni um:
Framtíðarsýn til ársins 2040 um öflugan sjávarútveg og fiskeldi
Þann 20. október sl. kynnti framkvæmdastjórn ESB framtíðarsýn um þróun sjávarútvegs og fiskeldis til ársins 2040 (e. Vision 2040 for fisheries and aquaculture). Þar er mörkuð langtímastefna sambandsins til næstu 15 ára með það að markmiði að efla umhverfislega og efnahagslega sjálfbærni greinanna. Framtíðarsýnin tekur meðal annars mið af matsskýrslu framkvæmdastjórnarinnar frá 30. apríl 2026 um framkvæmd reglugerðar um sameiginlega sjávarútvegsstefnu, þar sem fram kom að þótt árangur hefði náðst við að draga úr veiðiálagi hefði endurheimt fiskistofna gengið hægar en vænst var og efnahagsleg staða greinanna ekki batnað sem skyldi. Framtíðarsýnin er jafnframt liður í framkvæmd Evrópusáttmála um hafið (e. European Ocean Pact) og byggir á vegvísi um orkuskipti í sjávarútvegi og fiskeldi sem og stefnu ESB um alþjóðlegt samstarf á sviði sjávarútvegs.
Markmið framtíðarsýnarinnar er að tryggja lífsviðurværi þeirra samfélaga sem byggja afkomu sína á sjávarútvegi og fiskeldi og skapa fyrirtækjum fyrirsjáanleg skilyrði til fjárfestinga og vaxtar. Jafnframt er lögð áhersla á vernd þeirra vatnaauðlinda og vistkerfa sem atvinnugreinarnar byggja á, enda eru heilbrigð vistkerfi forsenda sjálfbærs sjávarútvegs og fiskeldis.
Samkvæmt framtíðarsýninni hyggst framkvæmdastjórnin m.a. skoða hvernig ný tækni og heildstæðari skráning upplýsinga um fiskveiðar geti aukið þekkingu á því hvar og hvenær óæskilegur afli veiðist og þannig stuðlað að markvissari aðgerðum til að koma í veg fyrir að slíkur afli veiðist. Jafnframt verður lögð áhersla á orkuskipti í sjávarútvegi og fiskeldi, endurnýjun fiskiskipaflotans, fjárfestingar í skipum sem nýta orku betur og eru öruggari sem og samræmdara regluverk um fiskeldi. Efla á markað fyrir sjálfbærar afurðir innan ESB og tryggja stafrænan rekjanleika afurða um alla aðfangakeðjuna fyrir árið 2029. Þá á að bæta aðgang að fjármagni, efla rannsóknir og nýsköpun og stuðla að nýliðun í greininni. Loks er lögð áhersla á aukið alþjóðlegt samstarf, m.a. í baráttunni gegn ólöglegum, ótilkynntum og stjórnlausum fiskveiðum (e. Illegal, Unreported and Unregulated fishing – IUU), og aðgerðir til að tryggja samkeppnisstöðu evrópsks sjávarútvegs.
Í framtíðarsýninni eru einnig tilgreindar ýmsar aðgerðir sem framkvæmdastjórnin hyggst ráðast í á næstu árum. Meðal annars verður unnið að nýju og samræmdara regluverki um fiskeldi og árið 2027 er fyrirhugað að kynna stefnu um nýliðun og hæfni í sjávarútvegi, fiskeldi og öðrum greinum sjávarhagkerfisins. Þá verður áfram unnið að endurnýjun fiskiskipaflotans og kannað hvort þörf sé á viðbótarviðmiðum við mat á raunverulegri veiðigetu fiskiskipa með hliðsjón af tækniframförum. Einnig er lögð áhersla á að samræma kröfur um þjálfun og vottun sjómanna á fiskiskipum.
Fjármögnun og fjárfestingar eru jafnframt meðal þeirra skilyrða sem framkvæmdastjórnin telur þurfa að vera fyrir hendi til að markmið framtíðarsýnarinnar náist. Í því samhengi er í tillögu að langtímafjárhagsáætlun ESB fyrir árin 2028–2034 gert ráð fyrir að minnst tveimur milljörðum evra verði varið innan lands- og svæðisbundinna samstarfsáætlana til að fjármagna lykilþætti sameiginlegu sjávarútvegsstefnunnar, m.a. sjálfbæran sjávarútveg og fiskeldi og vernd og endurheimt vistkerfa sjávar. Þá er í tillögunni einnig gert ráð fyrir fjármögnun úr Samkeppnishæfnisjóði Evrópu og að öðrum fjármálagerningum verði beitt í auknum mæli til að laða að einkafjárfestingar.
Sjá fyrri umfjöllun í Vaktinni um:
Fjármögnunaráætlun um varnartengda nýsköpun
Ráðherraráð ESB samþykkti 12. október sl. reglugerð um nýja fjármögnunaráætlun til varnartengdrar nýsköpunar (e. Programme for Agile and Rapid Defence Innovation – AGILE), í kjölfar samþykkis Evrópuþingsins 6. október sl. Markmið áætlunarinnar er að hraða þróun og hagnýtingu nýrrar varnartækni og er fjárhagsrammi hennar fyrir árið 2027 alls 115 milljónir evra.
Styrkir AGILE eru ætlaðir litlum og meðalstórum fyrirtækjum, þar á meðal sprotafyrirtækjum og fyrirtækjum í örum vexti. Stuðningurinn tekur einnig til aðlögunar borgaralegrar tækni til hernaðarlegra nota. Með einföldu styrkjaferli, aðgangi að prófunaraðstöðu og samstarfi við stærri varnariðnaðarfyrirtæki er stefnt að því að stytta tímann frá þróun frumgerðar til hagnýtingar tækninnar. Fyrirhugað er að auglýsa eftir umsóknum um fyrstu styrki AGILE í byrjun árs 2027.
Reglugerðin heimilar þátttöku EES/EFTA-ríkjanna í áætluninni á grundvelli EES-samningsins og hyggst Ísland taka þátt, en eftir er að ganga formlega frá aðildinni. Þátttaka Íslands mun gera litlum og meðalstórum íslenskum fyrirtækjum sem uppfylla skilyrði áætlunarinnar kleift að sækja um styrki til þróunar og prófana á nýrri varnartækni.
Sjá fyrri umfjöllun í Vaktinni um:
- tillögu að AGILE-áætluninni um nýsköpun í varnarmálum
- samkomulag Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB um AGILE-áætlunina
Löggjafartillaga um nútímavæðingu staðlastarfs
Hinn 6. október sl. lagði framkvæmdastjórn ESB fram löggjafartillögu um nútímavæðingu regluverks um evrópska stöðlun sem varðar fjölmargar atvinnugreinar. Miðar tillagan að því að efla samkeppnishæfni evrópskra fyrirtækja og auðvelda þeim að koma nýrri tækni á markað. Jafnframt er með tillögunni stefnt að því að stytta þann tíma sem tekur að þróa og samþykkja staðla úr sex árum í fjögur að meðaltali, þannig að staðlagerð haldi betur í við örar tæknibreytingar, meðal annars á sviði gervigreindar, netöryggis og grænnar tækni. Tillagan er í samræmi við áform sem fram komu í leiðarvísi fyrir aukna samkeppnishæfni frá árinu 2025.
Í tillögunni er lagt til að almenningur og fyrirtæki geti nálgast staðla sem tilgreindir eru í Stjórnartíðindum ESB á netinu án endurgjalds. Að mati framkvæmdastjórnarinnar mun slík birting ná til um 3.650 af um 27.000 stöðlum í skrám evrópskra staðlasamtaka. Með þessu er brugðist við dómi Evrópudómstólsins frá 5. mars 2024, þar sem dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að staðlar sem tilgreindir eru í Stjórnartíðindum ESB teldust hluti af réttarkerfi ESB og að ríkir almannahagsmunir réttlættu aðgang almennings að þeim.
Eitt af markmiðum tillögunnar er að staðlar taki betur mið af ólíkum þörfum fyrirtækja og samfélagsins í heild. Í samræmi við það markmið er í tillögunni stefnt að aukinni þátttöku lítilla og meðalstórra fyrirtækja, fræðasamfélagsins, opinberra aðila og félagasamtaka í gerð staðla og að birtar verði upplýsingar um hverjir taka þátt í mótun staðla og hverra hagsmuna þeir gæta.
Tillagan, sem framkvæmdastjórnin telur hafa EES-þýðingu, gengur nú til umfjöllunar hjá Evrópuþinginu og ráðherraráði ESB. Breytingarnar sem felast í tillögunni gætu veitt íslenskum fyrirtækjum gjaldfrjálsan aðgang að stöðlum og auðveldað þeim að sýna fram á að vörur þeirra uppfylli kröfur á innri markaðnum, til dæmis hvað varðar vöruöryggi, orkunýtni og takmörkun á notkun hættulegra efna.
Sjá fyrri umfjöllun í Vaktinni um:
Næsti langtímafjárhagsrammi og fjármögnun samstarfsáætlana
Írland, sem fer með formennsku í ráðherraráði ESB, lagði 10. október sl. fram málamiðlunartillögu um næsta langtímafjárhagsramma sambandsins fyrir árin 2028–2034 (e. Multiannual Financial Framework – MFF), sem leiðtogar ESB ræddu á fundi leiðtogaráðsins í Brussel dagana 15. og 16. október.
Tillagan gerir ráð fyrir lægri heildarútgjöldum ESB á árunum 2028–2034 en upphaflegar tillögur framkvæmdastjórnar ESB gerðu ráð fyrir. Samkvæmt tillögunni ná lægri framlög meðal annars til samstarfsáætlana á sviði rannsókna, nýsköpunar, menntunar, menningarmála, almannavarna og innri markaðarins, en Ísland tekur þátt í samstarfsáætlunum ESB á þessum sviðum.
Ekki náðist samkomulag á fundi leiðtoganna og enn eru skiptar skoðanir meðal aðildarríkjanna um heildarumfang útgjalda ESB og skiptingu fjármuna milli málaflokka innan fjárhagsrammans. Leiðtogarnir staðfestu þó þann pólitíska vilja að hraða viðræðunum og stefna enn að samkomulagi fyrir árslok 2026. Leiðtogarnir óskuðu eftir því að António Costa, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, þokaði viðræðunum áfram og er gert ráð fyrir frekari viðræðum um málið á aukafundi leiðtogaráðsins dagana 26.–27. nóvember nk.
Endanlegur langtímafjárhagsrammi ESB mun hafa áhrif á umfang og fjármögnun samstarfsáætlana á næsta tímabili og þar með á fjárhagslegar forsendur áframhaldandi þátttöku Íslands í samstarfsáætlunum sambandsins. Málið hefur því verulega þýðingu fyrir Ísland.
Sjá fyrri umfjöllun í Vaktinni um:
- tillögur framkvæmdastjórnarinnar að langtímafjármálaáætlun ESB 2028–2034
- sameiginlegt álit EES/EFTA-ríkjanna um nýjar samstarfsáætlanir ESB
- undirbúning Íslands að þátttöku í samstarfsáætlunum ESB 2028–2034
- stöðu undirbúnings að næstu fjármálaáætlun ESB
Óformlegur fundur menntamálaráðherra í Dublin
Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra tók þátt í óformlegum fundi menntamálaráðherra ESB í Dublin dagana 15. og 16. október sl. Írsku ráðherrarnir Hildegarde Naughton og James Lawless stýrðu fundinum, en Írland gegnir nú formennsku í ráðherraráði ESB. Auk þess tóku fulltrúar Noregs og Sviss þátt í fundinum, ásamt fulltrúum framkvæmdastjórnar ESB og Efnahags- og framfarastofnunarinnar (e. Organisation for Economic Co-operation and Development – OECD).
Meginviðfangsefni fundarins var hvernig efla mætti hæfni fólks á öllum æviskeiðum, með áherslu á grunnfærni, símenntun og jöfn tækifæri til náms. Ráðherrarnir ræddu hvernig bæta mætti árangur nemenda í læsi, stærðfræði og náttúruvísindum og efla stafræna hæfni þeirra. Umræðurnar fóru fram í kjölfar birtingar niðurstaðna PISA könnunarinnar (e. Programme for International Student Assessment – PISA) fyrir árið 2025 og var sérstaklega horft til þess hvernig samstarf ríkjanna gæti stuðlað að betri námsárangri og dregið úr mun á færni nemenda eftir bakgrunni og aðstæðum. Þessar áherslur falla vel að ályktun ráðherraráðs ESB frá 29. júní sl. um evrópskt samstarf á sviði menntunar og þjálfunar árin 2026–2030, sem miðar að því að bæta gæði menntunar, stuðla að jöfnum tækifærum til náms og auðvelda fólki að stunda nám og starfsþjálfun í öðrum Evrópuríkjum.
Á fundinum var jafnframt rætt um hvernig betur mætti meta hvaða þekkingu og færni fólk þarf á að halda, nú og í framtíðinni. Kom fram að nýta mætti þær upplýsingar til að laga menntun og starfsþjálfun að tæknibreytingum og breyttum þörfum samfélags og atvinnulífs. Áhersla var lögð á aðgengi að sí- og endurmenntun og tækifæri fullorðinna til að efla færni sína eða afla sér nýrrar hæfni. Loks var rætt um fyrirhugaða þátttöku Bretlands og Sviss í Erasmus+ samstarfsáætluninni frá og með árinu 2027. Með þátttöku þeirra fengju menntastofnanir í ríkjunum víðtækari aðgang að styrkjum til nemenda- og starfsmannaskipta, starfsþjálfunar og sameiginlegra menntaverkefna með stofnunum í öðrum þátttökuríkjum áætlunarinnar.
Sjá fyrri umfjöllun í Vaktinni um:
Framvinda löggjafartillagna framkvæmdastjórnar ESB
Hér er yfirlit yfir framvindu valinna löggjafartillagna framkvæmdastjórnar ESB í meðförum Evrópuþingsins og ráðherraráðs ESB sem kunna að hafa þýðingu fyrir Ísland og áður hefur verið fjallað um í Vaktinni.
Samþætting fjármálamarkaða og eftirlit – meginatriði afstöðu ráðsins samþykkt. Ráðherraráð ESB náði 9. október sl. samkomulagi um meginatriði samningsafstöðu sinnar til tillagna um samþættingu fjármálamarkaða og eftirlit. Afstaðan felur meðal annars í sér að eftirlit með mikilvægustu viðskiptavettvöngum og uppgjörsaðilum með starfsemi yfir landamæri verði fært til Verðbréfamarkaðseftirlits Evrópu (e. European Securities and Markets Authority – ESMA). Í afstöðu ráðsins er hins vegar lagt til þrengra gildissvið beins eftirlits ESMA með þjónustuveitendum á sviði sýndareigna en framkvæmdastjórnin lagði til, þannig að það taki í upphafi aðeins til mikilvægustu aðila með starfsemi yfir landamæri. Viðræður við Evrópuþingið bíða þess að þingið móti sína afstöðu. Nánar um afstöðu ráðsins. Fyrri umfjöllun í Vaktinni, 19. desember 2025.
Mat á umhverfisáhrifum – samningsumboð ráðsins um einfaldari málsmeðferð samþykkt. Ráðherraráð ESB samþykkti 30. september sl. samningsafstöðu sína til reglugerðartillögu um einfaldara og hraðara umhverfismat, sem er hluti af Omnibus VIII. Tillagan gerir meðal annars ráð fyrir sameiginlegum tengiliðum stjórnvalda, stafrænni málsmeðferð og samræmdari afgreiðslufrestum. Ráðið leggur til lengri fresti en framkvæmdastjórnin hafði lagt til og afmarkar sérstaklega hvaða stefnumarkandi verkefni skuli njóta flýtimeðferðar. Þá eru ákvæði um réttarúrræði aðlöguð til að tryggja samræmi við Árósasamninginn. Viðræður við Evrópuþingið hefjast þegar þingið hefur mótað samningsafstöðu sína. Nánar um afstöðu ráðsins. Fyrri umfjöllun í Vaktinni, 19. desember 2025.
Matvæla- og fóðuröryggi – afstaða ráðsins til einföldunar og hertra krafna um varnarefnaleifar í innfluttum matvælum og fóðri samþykkt. Ráðherraráð ESB samþykkti 30. september sl. samningsafstöðu sína til reglugerðartillögu um einföldun reglna á sviði matvæla- og fóðuröryggis, sem er hluti af Omnibus X (put a link). Afstaðan tekur meðal annars til leyfisferla fyrir plöntuverndarvörur og sæfiefni, aukefna í fóðri og hámarksgilda varnarefnaleifa. Samhliða einföldun ferla styður ráðið hertar kröfur um leifar sérstaklega hættulegra varnarefna í innfluttum matvælum og fóðri. Ráðið vill jafnframt láta þær kröfur ná til efna sem við tilteknar aðstæður skapa óásættanlega áhættu fyrir býflugur eða grunnvatn. Málið er enn til meðferðar í þingnefnd á Evrópuþinginu og bíða þríhliða viðræður afstöðu þess. Nánar um afstöðu ráðsins. Fyrri umfjöllun í Vaktinni, 19. desember 2025.
Erasmus+ 2028–2034 – Evrópuþingið leggur til aukið fjármagn. Menningar- og menntamálanefnd Evrópuþingsins samþykkti 29. september sl. afstöðu sína til næstu Erasmus+-áætlunar. Nefndin leggur til að fjárhagsrammi áætlunarinnar verði 47,39 milljarðar evra á verðlagi hvers árs, í stað 40,8 milljarða evra samkvæmt tillögu framkvæmdastjórnarinnar, og leggur áherslu á að gera áætlunina aðgengilegri, meðal annars fyrir fólk sem hefur færri tækifæri til náms og starfsþróunar. Fjárhagsrammi Erasmus+ verður þó ákveðinn í samhengi við yfirstandandi viðræður um næsta langtímafjárhagsramma ESB fyrir árin 2028–2034, þar sem aðildarríkin hafa enn ekki náð samkomulagi um heildarumfang og skiptingu útgjalda sambandsins. Skýrsla nefndarinnar var lögð fram 2. október sl. og Evrópuþingið samþykkti afstöðu sína til málsins á þingfundi 22. október sl. Um er að ræða afstöðu þingsins, en ekki samkomulag við ráðið um fjármögnun áætlunarinnar. Nánar um afstöðu nefndarinnar. Fyrri umfjöllun í Vaktinni, 25. september 2026.
Samevrópskir orkuinnviðir – viðræður þings og ráðs hafnar. Evrópuþingið staðfesti 16. september sl. samningsumboð þingnefndarinnar vegna endurskoðunar reglna um samevrópska orkuinnviði (e. Trans-European Networks for Energy – TEN-E). Í samningsumboðinu er lögð áhersla á viðnámsþol orkukerfa og samtengingar einstakra kerfa, orkuöryggi og orku á viðráðanlegu verði. Þar er meðal annars lagt til að verkefni þurfi að hafa náð nægilegum tæknilegum þroska eða vera studd traustum gögnum um fyrirliggjandi eða væntanlega eftirspurn til að geta hlotið stöðu sameiginlegra hagsmunaverkefna. Viðræður Evrópuþingsins og ráðsins um reglugerðartillöguna eru hafnar. Málsmeðferð og samningsumboð Evrópuþingsins. Fyrri umfjöllun í Vaktinni, 19. desember 2025.
Stafrænt regluverk – samningsafstaða ráðsins um einföldun reglna um persónuvernd, vefkökur og tilkynningar um netöryggisatvik samþykkt. Ráðherraráð ESB samþykkti 21. október sl. samningsafstöðu sína til reglugerðartillögu um einföldun stafræns regluverks, sem er hluti af Omnibus VII. Afstaðan tekur meðal annars til breytinga á persónuverndarreglugerðinni (e. General Data Protection Regulation – GDPR), einföldunar reglna um vefkökur og samræmingu tilkynninga vegna netöryggis- og gagnatengdra atvika. Ráðið leggur til að í stað einnar sameiginlegrar tilkynningargáttar á vettvangi ESB, eins og framkvæmdastjórnin hafði lagt til, verði einn móttökustaður í hverju aðildarríki auk sameiginlegs upplýsingavettvangs ESB um tilkynningar atvika. Viðræður við Evrópuþingið hefjast þegar þingið hefur mótað samningsafstöðu sína. Nánar um afstöðu ráðsins. Fyrri umfjöllun í Vaktinni, 21. nóvember 2025.
Framlengd framleiðendaábyrgð – samningsafstaða þings samþykkt og afstaða ráðsins vegna umbúða liggur fyrir. Evrópuþingið samþykkti 20. október sl. samningsafstöðu sína til tveggja tillagna í Omnibus VIII um tímabundna einföldun reglna um tilnefningu fulltrúa vegna framlengdrar framleiðendaábyrgðar. Tillögurnar taka annars vegar til umbúða og rafhlaðna og hins vegar m.a. til textíls, raf- og rafeindatækja og einnota plastvara. Þingið vill afmarka undanþáguna við lítil fyrirtæki innan ESB. Ráðherraráð ESB samþykkti 21. október sl. samningsafstöðu sína til þess hluta sem varðar umbúðir og leggur til að framleiðendur sem setja minna en eitt tonn af umbúðum á markað í öðru aðildarríki á ári geti verið undanþegnir skyldu til að tilnefna sérstakan fulltrúa. Viðræður Evrópuþingsins og ráðsins um ákvæði tillögunnar sem varða umbúðir geta því hafist. Nánar um afstöðu Evrópuþingsins. Nánar um afstöðu ráðsins. Fyrri umfjöllun í Vaktinni, 19. desember 2025.
Af vettvangi dómstólanna
Hér er yfirlit yfir nýlegar úrlausnir dómstóla Evrópusambandsins og EFTA-dómstólsins sem kunna að hafa þýðingu fyrir Ísland.
Viðurkenning foreldratengsla og frjáls för fólks – ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins í máli E-25/25. Í málinu reyndi á synjun Þjóðskrár Íslands á skráningu foreldratengsla barns sem fæddist eftir staðgöngumæðrun við íslenskan föður þess, þótt foreldratengslin hefðu verið viðurkennd í Svíþjóð. Dómstóllinn taldi synjunina fela í sér takmörkun á frjálsri för launþega. Skv. 28. gr. EES-samningsins væri skylt að skrá foreldratengslin ef það væri eina virka leiðin til að tryggja viðurkenningu þeirra. Landsdómstóllinn þyrfti að meta hvort önnur leið, svo sem ættleiðing, stæði í raun til boða og fullnægði kröfum um meðalhóf og það sem barninu væri fyrir bestu. Þá yrði málsmeðferðin að vera skjótvirk og greið. Á Íslandi er fjallað um foreldrastöðu í barnalögum nr. 76/2003, en kveðið er á um skráningu vensla í þjóðskrá í 18. tölul. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 140/2019 um skráningu einstaklinga. Ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins.
Þagnarskylda lögmanna og upplýsingakröfur skattyfirvalda – ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins í máli E-28/25. Málið varðaði kröfu Skattsins um afhendingu skrár yfir skjólstæðinga lögmannsstofu sem lögmannsstofan hafði veitt skattaráðgjöf eða aðra þjónustu vegna eignatengsla erlendis. Krafan byggðist á 4. mgr. 94. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, sbr. 5. mgr. sömu greinar, en lögmannsstofan bar fyrir sig þagnarskyldu lögmanna skv. 1. mgr. 22. gr. laga nr. 77/1998 um lögmenn. Dómstóllinn taldi að skv. 36. gr. EES-samningsins, túlkaðri í ljósi friðhelgi einkalífs og verndar trúnaðar í samskiptum lögmanna og skjólstæðinga, yrði slík upplýsingakrafa að eiga sér lagastoð, vera nauðsynleg og samrýmast meðalhófi. Landsdómstóllinn þyrfti að meta hvort markmiðum skatteftirlits mætti ná með jafnárangursríkum en vægari úrræðum, meðal annars með því að afla upplýsinganna hjá skattgreiðendum sjálfum eða með alþjóðlegri stjórnsýslusamvinnu. Ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins.
Réttur til dómstólameðferðar í Schengen-áritunarmálum – dómur Evrópudómstólsins í máli C-57/25. Málið varðaði löggjöf sem útilokaði að ákvarðanir um synjun, ógildingu eða afturköllun skammtímaáritana yrðu bornar undir dómstóla. Dómstóllinn taldi að brotið hefði verið gegn skyldum samkvæmt áritunarreglugerð ESB, í ljósi 47. gr. sáttmála ESB um grundvallarréttindi. Tryggja yrði aðgang að óháðum og óhlutdrægum dómstóli á einhverju stigi málsmeðferðarinnar. Á Íslandi er áritunarreglugerðin innleidd með lögum nr. 37/2026 um vegabréfsáritanir, sbr. 21. gr. Samkvæmt 17. og 18. gr. laganna er unnt að kæra ákvarðanir um synjun, ógildingu eða afturköllun áritunar til sjálfstæðrar úrskurðarnefndar áritanamála. Úrskurðum nefndarinnar verður ekki skotið til annarra stjórnvalda, en lögin útiloka ekki endurskoðun dómstóla, sbr. jafnframt 60. gr. stjórnarskrárinnar. Dómur Evrópudómstólsins.
Flugtafir og undanþágur frá bótaskyldu – dómur Evrópudómstólsins í máli C-108/26 RX. Málið varðaði hvort ákvörðun flugumferðarstjórnar sem leiddi til seinkunar flugs gæti ein og sér talist til óviðráðanlegra aðstæðna sem leystu flugrekanda undan bótaskyldu samkvæmt reglugerð (EB) nr. 261/2004 um réttindi flugfarþega. Við endurskoðun dóms Almennadómstólsins komst Evrópudómstóllinn að þeirri niðurstöðu að svo væri ekki. Meta yrði atvikin sem lágu ákvörðuninni til grundvallar: þau þyrftu bæði að falla utan venjulegrar starfsemi flugrekandans og vera raunverulega utan stjórnar hans. Flugrekandinn bæri sönnunarbyrðina og þyrfti jafnframt að sýna fram á að gripið hefði verið til allra þeirra ráðstafana sem með sanngirni mætti krefjast til að afstýra seinkuninni. Reglugerð (EB) nr. 261/2004 gildir hér á landi skv. 10. gr. reglugerðar nr. 466/2024 um réttindi flugfarþega. Dómur Evrópudómstólsins.
Úthlutun afgreiðslutíma á flugvöllum – dómur Evrópudómstólsins í máli C-857/24. Evrópudómstóllinn fjallaði um hvort taka mætti tillit til takmörkunar á árlegum farþegafjölda flugvallar samkvæmt skipulagsákvörðun við úthlutun afgreiðslutíma til flugrekenda samkvæmt reglugerð (EBE) nr. 95/93 um sameiginlegar reglur um úthlutun afgreiðslutíma á flugvöllum. Dómstóllinn taldi að taka bæri tillit til slíkrar takmörkunar við ákvörðun afkastagetu flugvallar ef hún takmarkaði raunverulega starfsemi hans, jafnvel þótt það gæti í undantekningartilvikum leitt til þess að flugrekendur héldu ekki áður nýttum afgreiðslutímum. Reglugerðin hefur verið innleidd í íslenskan rétt með reglugerð nr. 858/2014 um úthlutun afgreiðslutíma flugvalla, sbr. jafnframt lög nr. 80/2022 um loftferðir. Dómur Evrópudómstólsins.
Endurgreiðsla óheimilaðra greiðslna – dómur Evrópudómstólsins í máli C-70/25. Evrópudómstóllinn fjallaði um hvort greiðsluþjónustuveitandi gæti hafnað tafarlausri endurgreiðslu óheimilaðrar greiðslu á þeirri forsendu að greiðandi hefði sýnt af sér stórfellt gáleysi. Dómstóllinn taldi að greiðsluþjónustuveitanda bæri að endurgreiða fjárhæðina þegar í stað samkvæmt 73. gr. tilskipunar (ESB) 2015/2366, óháð því hvort greiðandi hefði sýnt af sér stórfellt gáleysi. Greiðsluþjónustuveitanda væri þó heimilt að krefjast síðar endurgreiðslu frá greiðanda ef sýnt væri fram á að tjónið mætti rekja til stórfellds gáleysis hans. Samsvarandi ákvæði um tafarlausa endurgreiðslu er að finna í 79. gr. laga nr. 114/2021 um greiðsluþjónustu, en um ábyrgð greiðanda vegna stórfellds gáleysis er fjallað í 80. gr. laganna. Dómur Evrópudómstólsins.
Rangar upplýsingar bjóðenda við opinber innkaup – dómur Evrópudómstólsins í máli C-402/25. Málið varðaði fyrirtæki sem hafði hlotið verksamning í opinberu útboði en veitt rangar upplýsingar um hvort það uppfyllti hæfiskröfur útboðsins. Dómstólar komust síðar að þeirri niðurstöðu að upplýsingarnar hefðu verið veittar af stórfelldu gáleysi og reyndi á hvort heimilt væri samkvæmt tilskipun 2014/24/ESB um opinber innkaup að birta nafn fyrirtækisins á lista yfir bjóðendur sem veitt hefðu rangar upplýsingar, þótt því hefði ekki verið vísað frá útboðinu áður en því lauk. Evrópudómstóllinn taldi slíka birtingu heimila, enda hefði með endanlegum dómi verið staðfest að fyrirtækið hefði veitt rangar upplýsingar. Birtingin yrði að taka mið af alvarleika háttseminnar og mætti ekki vara lengur en þrjú ár, fyrirtækinu yrði að gefast kostur á að sýna fram á að það hefði gripið til fullnægjandi ráðstafana til að staðfesta áreiðanleika sinn og unnt væri að bera ákvörðun um birtinguna undir dómstól. Í íslenskum rétti er heimilt skv. i-lið 6. mgr. 68. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup að útiloka fyrirtæki frá þátttöku í innkaupaferli ef það hefur veitt rangar upplýsingar eða leynt upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að sannreyna hæfi þess eða hvort útilokunarástæður séu fyrir hendi. Dómur Evrópudómstólsins.
Opið samráð framkvæmdastjórnar ESB
Hér er yfirlit yfir opið samráð sem kann að hafa þýðingu fyrir Ísland. Yfirlitið tekur bæði til samráðs í vefgátt framkvæmdastjórnar ESB (e. Have Your Say) og annars opins samráðs sem framkvæmdastjórnin stendur fyrir.
Fair access to financial services for cancer survivors
Samráðið varðar aðgang einstaklinga sem hefur lokið krabbameinsmeðferð að fjármálaþjónustu, meðal annars mögulegar aðgerðir til að tryggja að fyrri sjúkdómssaga takmarki ekki með ósanngjörnum hætti aðgang að þjónustunni.
Frestur til 27. október.
EU fishers – training and certification standards
Samráðið varðar hvort og hvernig samræma eigi kröfur um menntun, þjálfun og starfsréttindi sjómanna á fiskiskipum, með það að markmiði að auka öryggi og auðvelda þeim að starfa í öðrum ríkjum.
Frestur til 29. október.
Fisheries and aquaculture – simplification of administrative requirements
Samráðið varðar stjórnsýslu- og eftirlitskröfur sem gilda um sjávarútveg og fiskeldi, meðal annars leyfi, afladagbækur, rekjanleika, matvælaöryggi og umhverfisskýrslugjöf og einnig hvaða kröfur megi einfalda eða samræma betur.
Frestur til 31. október.
Copyright – creativity and innovation
Samráðið varðar höfundarétt í stafrænu umhverfi, meðal annars notkun höfundaréttarvarins efnis við þróun gervigreindar, ólöglega miðlun viðburða á netinu, endurgjald til tónlistarflytjenda og notkun verka við vísindarannsóknir.
Frestur til 3. nóvember.
Samráðið varðar tillögu framkvæmdastjórnarinnar um endurskoðun viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir (ETS), meðal annars reglur um fríúthlutun, flug og siglingar, markaðsstöðugleikasjóðinn og frekari þróun kerfisins.
Frestur til 3. nóvember.
Samráðið varðar mögulegar breytingar á virðisaukaskattsreglum til að styðja betur við hringrásarhagkerfið, meðal annars reglur um notaðar vörur, eyðingu nothæfra vara og frádrátt vegna fólksbifreiða í atvinnurekstri.
Frestur til 4. nóvember.
Balanced Approach Regulation – airport noise
Samráðið varðar mat á reglum um hávaðavarnir og rekstrartakmarkanir á flugvöllum.
Frestur til 19. nóvember.
Atlantic Maritime and Macro-regional Strategy
Samráðið varðar undirbúning stefnu um samstarf á Atlantshafssvæðinu, meðal annars á sviði hafmála, öryggis, sjálfbærni og samkeppnishæfni.
Frestur til 26. nóvember.
Technical Measures Regulation – implementation
Samráðið varðar framkvæmd reglna um tæknilegar ráðstafanir við fiskveiðar, meðal annars veiðarfæri, möskvastærðir og lokun veiðisvæða, sem og áhrif þeirra á sjálfbærni veiða.
Frestur til 27. nóvember.
International Procurement Instrument – review
Samráðið varðar fyrstu endurskoðun International Procurement Instrument, meðal annars gildissvið og framkvæmd reglnanna og aðgang fyrirtækja að opinberum innkaupamörkuðum.
Frestur til 1. desember.
Child online safety – EU Kids Act
Samráðið varðar tillögu að reglugerð um öryggi barna á netinu, meðal annars aldurstakmarkanir á samfélagsmiðlum og kröfur til stafrænnar þjónustu og gervigreindarkerfa sem börn nota.
Frestur til 3. desember.
Territorial supply constraints in the Single Market
Samráðið varðar mögulegar aðgerðir gegn takmörkunum framleiðenda á því hvar smásalar og heildsalar geta keypt vörur á innri markaðnum.
Frestur til 4. desember.
Samráðið varðar tillögu að reglugerð um viðráðanlegt húsnæði, meðal annars aðgerðir til að bæta framboð húsnæðis og virkni húsnæðismarkaða og draga úr hindrunum sem hafa áhrif á aðgengi að húsnæði.
Frestur til 10. desember.
Fair labour mobility package – European Social Security Pass (ESSPASS)
Samráðið varðar tillögu að reglugerð um ESSPASS, stafræna lausn sem á að auðvelda útgáfu og sannprófun almannatryggingaskjala og réttinda yfir landamæri.
Frestur til 10. desember.
EU public procurement rules – revision
Samráðið varðar tillögu að nýju regluverki ESB um opinber innkaup og sérleyfi, meðal annars einföldun og stafræna málsmeðferð, aukna áherslu á öryggi og viðnámsþol og umhverfis-, félags- og nýsköpunarsjónarmið við opinber innkaup.
Frestur til 13. desember.
Standardisation Regulation – revision
Samráðið varðar tillögu að nýju regluverki um evrópska staðla, meðal annars hraðari og stafrænna staðlagerð, aðgang að stöðlum og þátttöku lítilla og meðalstórra fyrirtækja í staðlastarfi.
Frestur til 13. desember.
Data centres in Europe – minimum performance standards
Samráðið varðar lágmarksviðmið um orkunýtni og umhverfisframmistöðu gagnavera.
Frestur til 14. desember.
***
Brussel-vaktin, fréttabréf sendinefndar Íslands gagnvart Evrópusambandinu, er gefið út að jafnaði tvisvar í mánuði. Þar er greint frá því sem efst er á baugi í stefnumörkun Evrópusambandsins og á vettvangi EES-samningsins, í samræmi við samþykkta ritstjórnarstefnu.
Ritstjóri: Sigurður Örn Guðleifsson, sendiráðunautur.
Ábyrgðarmaður: Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra.
Leiðréttingar, ábendingar og athugasemdir sendist til ritstjóra Vaktarinnar á netfangið [email protected].
Hægt er að gerast áskrifandi með því að fara í „Áskriftir“ hér á vefnum og merkja þar við Brussel-vaktina. Einnig er hægt að senda tölvupóst með beiðni um áskrift á [email protected].