Stórsókn í uppbyggingu hjúkrunarrýma á Norðurlandi
Uppbygging nýrra hjúkrunarheimila á Akureyri og Húsavík er komin á fullt skrið. Búið er að taka tilboði Reita í byggingu hjúkrunarheimilis við Þursaholt á Akureyri og framkvæmdir eru í fullum gangi við nýtt hjúkrunarheimili við Auðbrekku á Húsavík. Pekron ehf. reisir síðarnefnda hjúkrunarheimilið og er gert ráð fyrir að það rísi á um 12 mánuðum sem telst afar skammur framkvæmdatími miðað við umfang verkefnisins.
Uppbyggingin á Akureyri og Húsavík felur í sér verulega fjölgun hjúkrunarrýma og stórbætta aðstöðu á Norðurlandi og er liður í þjóðarátaki í málaflokknum.
Í mars sl. kynntu stjórnvöld áætlun um stórfellda fjölgun hjúkrunarrýma hér á landi. Gert er ráð fyrir að ríflega 1.500 hjúkrunarrými verði tekin í notkun fyrir árslok 2030 og að 90% þeirra verði hrein viðbót við þau hjúkrunarrými sem fyrir eru. Í árslok 2025 voru 3.062 hjúkrunarrými á landinu öllu.
„Góður gangur hefur verið í verkefnunum sem við höfum sett af stað og það er mikið gleðiefni að sjá langþráð hjúkrunarheimili loksins verða að veruleika,“ segir Inga Sæland, sem fer fyrir uppbyggingu hjúkrunarheimila á landsvísu. „Við höfum spýtt í lófana og uppbyggingin er á fleygiferð. Þetta er nákvæmlega það sem við ætluðum okkur – að gjörbreyta stöðunni í uppbyggingu hjúkrunarheimila hér á landi og tryggja að eldra fólk fái þá umönnun, öryggi og þjónustu sem það á skilið.“
Frá 80 rýmum í 140 á Akureyri
Þegar ríkið og Akureyrarbær undirrituðu samkomulagið um uppbygginguna í Þursaholti í maí 2025 var miðað við 80 hjúkrunarrými en fljótlega var ákveðið að fjölga þeim upp í 140.
- Tilkynnt var í júní sl. að Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir (FSRE) hefði metið tilboð Reita hagstæðast með tilliti til verðs og afhendingartíma. Nú hafa samningar verið undirritaðir og hönnun og frekari útfærsla heimilisins eru fram undan.
- Hjúkrunarheimilið verður um 9.100 fermetrar að stærð og verður byggt með samblandi af forsmíðuðum og forsteyptum einingum. Gert er ráð fyrir að það rísi á 15 mánuðum.
- Uppbyggingin er mikilvægur liður í að mæta vaxandi þörf fyrir hjúkrunarþjónustu og felur í sér að hjúkrunarrýmum á Akureyri fjölgar verulega.
Langþráð hjúkrunarheimili á Húsavík í Norðurþingi verður að veruleika
Uppbyggingarinnar í Norðurþingi hefur lengi verið beðið. Skóflustunga var tekin að nýju hjúkrunarheimili við Auðbrekku 2 á Húsavík árið 2021 og grafið fyrir grunni hússins. Ekkert varð hins vegar af sjálfri byggingu hjúkrunarheimilisins.
- Samkomulag var undirritað vorið 2025 um nýja leið við að reisa hjúkrunarheimilið. Framkvæmdir voru í kjölfarið boðnar út og í mars sl. var tilboði Pekron ehf. í verkið tekið. Pekron lagði tilboðið fram fyrir hönd Rafkletts ehf.
- Uppsteypa er nú hafin við tengigang hjúkrunarheimilisins og unnið er að gatnagerð á svæðinu.
- „Kyrrstaða hafði ríkt um verkefnið um árabil og holan þar sem heimilið átti að rísa hafði staðið auð svo árum skipti. Þessa kyrrstöðu rufum við,“ segir Inga Sæland. „Það er ánægjulegt að segja frá því að nýja hjúkrunarheimilið á að rísa á methraða eða einungis 12 mánuðum. Ég er ótrúlega stolt af þessu og samgleðst Húsvíkingum og nærsveitungum innilega að fá loksins nýja hjúkrunarheimilið sem þeir hafa beðið eftir svo árum skiptir.“
- Á hjúkrunarheimilinu verða 60 hjúkrunarrými og munu allir 54 íbúar á hjúkrunarheimili Hvammi flytja yfir þegar nýja heimilið verður opnað. Nýja heimilið leysir þannig það eldra af hólmi, auk þess sem hjúkrunarrýmum í sveitarfélaginu fjölgar um sex. Öll herbergin á nýja hjúkrunarheimilinu verða einbýli með einkabaðherbergjum.
Tölvugerð mynd af hjúkrunarheimilinu á Akureyri. Mynd: Art-verk.
Tölvugerð mynd af hjúkrunarheimilinu í Norðurþingi. Mynd: HJARK arkitektar.
Fjölmörg önnur verkefni þegar komin af stað eða í undirbúningi
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er áhersla lögð á málefni eldra fólks, þar á meðal fjölgun hjúkrunarrýma.
- Þann 19. mars 2025 var tilkynnt að samkomulag væri í höfn milli ríkis og sveitarfélaga um ábyrgðarskiptingu á uppbyggingu hjúkrunarheimila.
- Í byrjun maí 2025 var fyrsta skóflustungan tekin að nýju hjúkrunarheimili í Ási í Hveragerði.
- Nokkrum dögum síðar mundaði þáverandi félags- og húsnæðismálaráðherra sleggju við Nauthólsveg í Reykjavík en þar verður ráðist í gagngerar endurbætur á húsnæði sem breytt verður í hjúkrunarheimili.
- Undir lok maímánaðar 2025 var ráðherra á Akureyri vegna samkomulags um nýtt hjúkrunarheimili í Þursaholti.
- Sama dag fór ráðherra á Húsavík en þar hefur kyrrstaða nú verið rofin um hjúkrunarheimili sem beðið hefur verið eftir svo árum skiptir.
- Þann 16. júní 2025 var samkomulagið sem náðist milli ríkis og sveitarfélaga í mars fest í lög.
- Þann 1. júlí 2025 var nýtt samkomulag undirritað um þreföldun hjúkrunarrýma í Mosfellsbæ.
- Þremur dögum síðar var skóflustunga tekin að stækkun hjúkrunarheimilisins í Sóltúni í Reykjavík.
- Nýtt hjúkrunarheimili í Boðaþingi í Kópavogi var opnað þann 2. september 2025, að viðstöddum ráðherrum, bæjarstjóra og fleirum.
- Þann 8. janúar 2026 var viljayfirlýsing undirrituð um uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis í Hafnarfirði.
- Nýtt hjúkrunarheimili var opnað við Nesvelli í Reykjanesbæ þann 15. janúar 2026 að viðstöddum ráðherrum, bæjarstjóra og fleirum.
- Í mars síðastliðinn var hjúkrunarheimili opnað í Urðarhvarfi í Kópavogi með 100 rýmum sem notuð eru sem skammtímahjúkrunarrými.
- Í mars síðastliðnum var uppfært samkomulag undirritað um byggingu nýs hjúkrunarheimilis við Mosaveg í Reykjavík.
- Þann 4. maí var samkomulag undirritað um nýbyggingu sem mun hýsa nýtt hjúkrunarheimili og heilsugæslustöð í Vík í Mýrdal.
- Um miðjan júní var tilkynnt að tilboð Reita hafi verið valið hagstæðast af Framkvæmdasýslunni-Ríkiseignum vegna uppbyggingar hjúkrunarheimilis fyrir 140 íbúa á Akureyri.
- Síðar í sama mánuði var tilkynnt að nýtt hjúkrunarheimili með 90 rýmum verði opnað við Keilisbraut í Reykjanesbæ.
- Í júní var einnig undirrituð viljayfirlýsing um viðbyggingu við hjúkrunarheimilið Höfða á Akranesi með 60 nýjum hjúkrunarrýmum.
- Í ágúst var nýtt hjúkrunarheimili við Skjólgarð á Höfn í Hornafirði vígt.
- Jafnframt er unnið að opnun fleiri skammtímahjúkrunarrýma.