Styrkir til sveitarfélaga í þágu farsældar barna
Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum sveitarfélaga um styrki til verkefna sem miða að því að efla farsæld barna. Styrkirnir eru hluti af aðgerðum stjórnvalda gegn ofbeldi meðal barna og ofbeldi gegn börnum og styðja jafnframt við framkvæmd laga nr. 86/2021 um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Sérstök áhersla er lögð á forvarnir, snemmtækan stuðning og aukið öryggi barna.
Styrkir verða veittir til verkefna sem stuðla að farsæld barna, bættri þjónustu og aukinni velferð barna, meðal annars á sviði skóla- og frístundastarfs, forvarna, samfélagslegrar þátttöku, ráðgjafar og stuðnings við börn og fjölskyldur þeirra. Verkefni geta staðið yfir í allt að tvö ár.
Umsækjandi og ábyrgðaraðili verkefnis skal vera sveitarfélag eða landshlutasamtök sveitarfélaga. Ef tveir eða fleiri aðilar sækja sameiginlega um styrk skal einn þeirra vera tilgreindur sem leiðandi umsækjandi og bera ábyrgð á framkvæmd verkefnisins, fjárreiðum og skilum til ráðuneytisins.
Við úthlutun verður einkum horft til verkefna sem fela í sér:
- Öruggt og styðjandi skóla- og frístundaumhverfi, með verkefnum sem byggja upp varanlega hæfni starfsfólks og skólaþjónustu til að vinna eftir heildrænni, tengslamiðaðri og gagnreyndri nálgun, auka farsæld, efla jákvæðan skólabrag, fyrirbyggja ofbeldi og bregðast markvisst við krefjandi hegðun og ofbeldi þannig að öryggi og vellíðan barna sé tryggð.
- Þverfaglega nálgun í ofbeldismálum, með verkefnum sem efla teymisvinnu, upplýsingamiðlun og svæðisbundið samráð sveitarfélaga við lögreglu, heilbrigðisþjónustu og/eða aðra lykilaðila.
- Samþættan stuðning við börn með fjölþættar þjónustuþarfir, með verkefnum sem tryggja samfellda og samræmda þjónustu við einstök börn og fjölskyldur þeirra þvert á skóla, félagsþjónustu, barnavernd, heilbrigðisþjónustu og önnur þjónustukerfi.
- Aukið öryggi í umhverfi barna, með verkefnum sem beinast að aðstæðum og vettvangi þar sem hætta er á ofbeldi meðal barna, svo sem í frístundastarfi, á almannafæri, á leiðum milli staða og í stafrænu umhverfi.
- Aukna félagslega þátttöku, með verkefnum sem draga úr félagslegri einangrun og auðvelda börnum sem standa utan skipulags starfs að taka þátt í íþrótta-, frístunda- og félagsstarfi.
- Snemmtækan stuðning og forvarnir, með verkefnum sem stuðla að því að þarfir barna og fjölskyldna séu greindar og viðeigandi stuðningur veittur áður en vandi verður alvarlegur, meðal annars með áherslu á yngri börn og fyrstu merki um vanlíðan eða ofbeldishegðun.
Upptalningin er ekki tæmandi og önnur verkefni sem falla að markmiðum styrkjanna geta komið til greina.
Sveitarfélög eru sérstaklega hvött til samstarfs við önnur sveitarfélög, stofnanir, félagasamtök og íþrótta- og æskulýðsfélög, og til að sækja sameiginlega um fyrir heil þjónustusvæði, til dæmis á vettvangi sameiginlegrar skólaþjónustu, svæðisbundinna farsældarráða eða landshlutasamtaka.
Við mat á umsóknum verður meðal annars litið til þess:
- hversu vel verkefnið samræmist markmiðum og áherslum auglýsingarinnar,
- hvort verkefnið byggi á gagnreyndum aðferðum og sameiginlegum faglegum ramma, eftir atvikum í samstarfi við hlutaðeigandi fagstofnun ríkisins, svo sem Miðstöð menntunar og skólaþjónustu eða Barna- og fjölskyldustofu,
- umfangs og gæða þverfaglegs samstarfs,
- hvort verkefnið nái til heils þjónustusvæðis og byggi upp varanlega þekkingu og getu innan reglulegrar starfsemi, fremur en tímabundna verkefnisstöðu,
- hvort framkvæmda-, tíma- og fjárhagsáætlun sé skýr og raunhæf,
- hvort markmið og mælikvarðar á árangur séu skýrir,
- hvort fjármögnun verkefnisins sé tryggð, þar á meðal eigið framlag umsækjanda og önnur fjármögnun,
- hvernig reynsla og niðurstöður verkefnisins verði nýttar og
- möguleika á áframhaldandi starfsemi að styrktímabili loknu.
Heildarfjárhæð styrkja samkvæmt auglýsingunni nemur allt að 474 m.kr.
Nánari upplýsingar um almenn skilyrði og meðferð umsókna er að finna í reglum um úthlutun styrkja mennta- og barnamálaráðherra.
Sótt er um rafrænt á Mínum síðum Stjórnarráðsins, undir Mennta- og barnamálaráðuneytinu. Ekki verður tekið við umsóknum sem berast með öðrum hætti. Leiðbeiningar um notkun Minna síðna eru aðgengilegar á vef Stjórnarráðsins.
Umsókn skal innihalda:
- greinargóða lýsingu á verkefninu, markmiðum þess og markhópi,
- framkvæmda- og tímaáætlun,
- upplýsingar um samstarfsaðila og verkaskiptingu**,** eftir því sem við á,
- fjárhagsáætlun á stöðluðu eyðublaði ráðuneytisins,
- upplýsingar um eigið framlag umsækjanda og aðra fjármögnun,
- mælikvarða sem gera kleift að meta framvindu og árangur verkefnisins, og
- upplýsingar um fyrirhugað framhald verkefnis að styrktímabili loknu.
Ráðuneytið áskilur sér rétt til að óska eftir frekari upplýsingum og gögnum við mat á umsóknum, meðal annars um faglega getu umsækjanda og fjárhagslegar forsendur verkefnis.
Fyrirspurnir um auglýsinguna má senda á netfangið [email protected].
Umsóknarfrestur er til og með 13. október 2026. Áætlað er að ákvörðun um úthlutun liggi fyrir eigi síðar en 1. desember 2026.