Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Verið velkomin á Vísinda- og nýsköpunarþing n.k. föstudag
Vísinda- og nýsköpunarráð stendur fyrir Vísinda- og nýsköpunarþingi n.k föstudag kl. 9 í Grósku. Þar koma saman ungt fólk og fulltrúar vísindasamfélagsins, atvinnulífsins og stjórnvalda. Þingið er opið á meðan húsrúm leyfir - skráning fer fram hér.
Á þinginu verður sjónum beint að því hvernig rannsóknir og hugvit verða að raunverulegum lausnum og verðmætum. Fjallað verður meðal annars um fullnýtingu sjávarafurða, tæknilausnir fyrir fólk með hreyfiskerðingar, verðmætasköpun á grundvelli vísinda, nýtingu ljósleiðara við rannsóknir á eldvirkni og umhverfi og uppbyggingu Treble Technologies. Þinginu lýkur með pallborðsumræðum undir yfirskriftinni Frá rannsóknarstofunni út í raunveruleikann.
Vísinda- og nýsköpunarráð stendur að þinginu í samstarfi við forsætisráðuneytið, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið og mennta- og barnamálaráðuneytið.
