Vísinda- og nýsköpunarráð
Í júlí 2023 skipaði forsætisráðherra, fulltrúa í Vísinda- og nýsköpunarráð til næstu fjögurra ára í samræmi við lög um Vísinda- og nýsköpunarráð nr. 137/2022. Samkvæmt 5. gr. laganna skipar ráðherra níu fulltrúa í ráðið á grundvelli tillagna sérstakrar tilnefningarnefndar, þar af einn sem formann ráðsins. Varamenn eru tilnefndir og skipaðir með sama hætti.
Lög um Vísinda- og nýsköpunarráð tóku gildi 1. apríl 2023. Markmið laganna er að efla stefnumótun og samhæfingu á sviði vísinda, tækniþróunar og nýsköpunar hér á landi svo að styrkja megi íslenskt þekkingarsamfélag og auka samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.
Í júní 2025 kom út stefna um vísindi, tækniþróun og nýsköpun til ársins 2035. Stefnan er framtíðasýn stjórnvalda til næstu 10 ára og byggir á tillögu Vísinda og nýsköpunarráðs.
Hlutverk Vísinda- og nýsköpunarráðs er að:
- Veita ráðherranefnd um vísindi og nýsköpun og ráðherra sem fer með málefni vísinda og nýsköpunar ráðgjöf um stefnumótun á sviði vísinda, tækniþróunar og nýsköpunar, sérstaklega gagnvart mikilvægum samfélagslegum áskorunum.
- Veita ráðherranefnd endurgjöf með því að fjalla um framtíðarsýn og stefnu stjórnvalda og setja fram rökstuddar tillögur að umbótum með tilvísun í alþjóðlega þróun á sviði vísinda, tækniþróunar og nýsköpunar.
- Stuðla að upplýstri og gagnrýnni umræðu um vísindi, tækni og nýsköpun, stöðu greinanna og mikilvægi fyrir íslenskt samfélag með skýrslum og opnum fundum.
- Birta árlega stöðuskýrslu um vísindi, tækniþróun og nýsköpun á Íslandi.
- Vinna með sérfræðingum á sviði vísinda, tækniþróunar og nýsköpunar innan ráðuneyta að betri þekkingu á stöðu vísinda-, tækniþróunar- og nýsköpunarmála á Íslandi, reglubundnum kynningum og mælikvörðum á sviðinu.
Aðalmenn:
- Freysteinn Sigmundsson, vísindamaður í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands, formaður
- Elín Díanna Gunnarsdóttir, dósent í sálfræði við Háskólann á Akureyri
- Finnur Ulf Dellsén, prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands
- Hildur Einarsdóttir, forstjóri Advania á Íslandi
- Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP
- Kolbrún Hrafnkelsdóttir, stofnandi Florealis
- Lotta María Ellingsen, dósent í rafmagnsverkfræði við Háskóla Íslands
- Paul Nurse, forstöðumaður Crick Institute í Bretlandi
- Robert Jan-Smits, formaður stjórnar Eindhoven háskóla í Hollandi
Varamenn:
- Ásdís Jónsdóttir, sérfræðingur hjá Uppbyggingarsjóði EFTA í Brussel
- Ásthildur Margrét Otharsdóttir, meðeigandi og fjárfestingastjóri hjá Frumtaki
- Bryndís Snæbjörnsdóttir, prófessor í myndlist við Listaháskóla Íslands
- Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands
- Karl Ægir Karlsson, prófessor líffræði við Háskólann í Reykjavík
- Kristinn Rúnar Þórisson, prófessor í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík
- Kormákur Hlini Hermannsson, yfirverkfræðingur og meðstofnandi Nox Medical
- Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands
- Örn Almarsson, stofnandi Axelyf
Hlutverk ráðherranefndar um vísindi og nýsköpun er að samræma stefnu stjórnvalda á sviði vísinda, tækniþróunar og nýsköpunar. Er nefndinni ætlað að auka yfirsýn, skerpa framtíðarsýn og efla gagnsæi í stefnumálum vísinda og nýsköpunar og styðjast í því efni við virka ráðgjöf Vísinda- og nýsköpunarráðs.
Þeir ráðherrar sem eiga fast sæti í nefndinni eru forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, heilbrigðisráðherra, matvælaráðherra, mennta- og barnamálaráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Samkvæmt 4. gr. laga um Vísinda- og nýsköpunarráð er umsýsla og undirbúningur funda fyrir bæði Vísinda- og nýsköpunarráð og ráðherranefnd um vísindi- og nýsköpun, hjá ráðuneyti vísinda. Starfsmaður ráðuneytis vísinda gegnir hlutverki ritara nefndarinnar. Ráðherra háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunar skipar fulltrúa þeirra ráðherra sem sitja í ráðherranefnd um vísindi og nýsköpun í samstarfshóp ráðuneyta um vísindi og nýsköpun.
Hlutverk samstarfshóps ráðuneyta um vísindi og nýsköpun er að undirbúa fundi Vísinda- og nýsköpunarráðs og ráðherranefndar um vísindi og nýsköpun auk þessa að samtvinna vinnu ráðuneytanna á þessu sviði.
Ráðherra háskóla-, iðnaðar og nýsköpunar hefur skipað fulltrúa í samstarfshóp ráðuneyta um vísindi og nýsköpun. Í hópnum eru:
Aðalmenn:
Guðbjörg
Andrea Jónsdóttir, formaður, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti
Rósa Guðrún
Erlingsdóttir, varaformaður, forsætisráðuneyti
Guðmundur
Skúli Hartvigsson, fjármála- og efnahagsráðuneyti
Steinunn Hauksdóttir, umhverfisráðuneyti
Hrafnkell
Tumi Kolbeinsson, mennta- og barnamálaráðuneyti
Kristín Ninja
Guðmundsdóttir, heilbrigðisráðuneyti
Rafn
Helgason, atvinnuvegaráðuneyti
Tryggvi
Haraldsson, félags- og húsnæðismálaráðuneyti
Varamenn:
Bjarki
Vigfússon og Daníel Svavarsson, forsætisráðuneyti
Björk
Óttarsdóttir, mennta- og
barnamálaráðuneyti
Freydís
Vigfúsdóttir og Kjartan Ingvarsson, umhverfisráðuneyti
Harpa
Theodórsdóttir, atvinnuvegaráðuneyti
Pétur Berg
Matthíasson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti
Netfang Vísinda- og nýsköpunarráðs er [email protected]